Frétt
Listería í taðreyktum silungi
Matvælastofnun varar við neyslu á tveimur pökkunardagsetningum af taðreyktum silungi frá Geitey vegna listeríu (Listeria monocytogenes). Við innra eftirlit fyrirtækisins greindist listería og hefur fyrirtækið innkallað vöruna, í samráði við Matvælastofnun.
Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með pökkunardagsetningu 06.09.21 og 07.09.21:
Vöruheiti: Taðreyktur silungur
Framleiðandi: Geitey ehf
Nettóþyngd: Breytileg
Pökkunardagsetning: 06.09.21 og 07.09.21
Geymsluskilyrði: Kælivara við 0-4°C
Dreifing: Verslanir Hagkaupa, Nettó verslanir, Krambúð Húsavík, Skagfirðingabúð, Hlíðarkaup, Lamb-Inn, Melabúðin, Fjarðarkaup og Kolaportið.
Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.
Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila vörunni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun.
Mynd: Mast.is
-
Frétt7 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt1 dagur síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku




