Markaðurinn
WMF framleiðir borðbúnað á heimsmælikvarða
Það þekkja flestir þýska fyrirtækið WMF sem framleitt hefur hágæða eldhúsáhöld í 165 ár.
Fyrirtækið selur í raun öll tæki og tól sem þarf við eldamennsku auk þess sem það selur borðbúnað, leirtau og glös. Samkvæmt WMF þá nota yfir 100 milljón manns WMF vörur daglega í heiminum.
Við já Bako Ísberg höfum verið umboðsaðili fyrir WMF stóreldhús um árabil og hafa vörurnar þeirra heldur betur slegið í gegn.
Margir þekkja vatnskönnurnar frá þeim sem eru með loki og síu þannig að klakar og annað helst í könnunni þegar helt er.
Hnífaparakassarnir þeirra eru á einstöku verði og höfum við verið með vinsælar týpur á lager á borð við Boston og Denver.
Í haust varð algjör sprenging í svokölluðum High Tea rekkum frá WMF en fólk getur valið hvaða stell eða diska það notar í rekkana sem seldir eru stakir.
Steikarhnífapörin og kjötmælarnir frá WMF eru hið mesta þarfaþing í eldhús allra landsmanna og það er hægt að ganga að því vísu að við í Bako Ísberg eigum þetta til.
WMF hefur unnið til fjölda verðlauna og þykir fyrirtækið í topp 3 sætunum í heiminum í dag þegar kemur að borðbúnaði.
Þú færð WMF í Verslun okkar Höfðabakka 9 sem og í netverslun okkar www.bakoisberg.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Markaðurinn13 klukkustundir síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir
-
Starfsmannavelta15 klukkustundir síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn5 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí







