Markaðurinn
Það toppar fátt alvöru eldbakaðar DeliVita pizzur
Það þekkja eflaust margir pizzaofnanna frá DeliVita, en fyrirtækið hefur fengið ótal viðurkenningar í Bretlandi þaðan sem ofnarnir koma.
DeliVita framleiðir bæði pizzaofna fyrir fagmenn en einnig fyrir áhugamenn um eldbakaðar pizzur utandyra.
Nýverið kom stofnandi DeliVita hann Joe Formisand til Íslands í heimsókn í Bako Ísberg, sem er umboðsaðili DeliVita á Íslandi, en þar fór hann yfir allt það nýjasta sem framundan er hjá þessu áhugaverða og flotta fyrirtæki.
DeliVita býður upp á alvöru leirofna sem hægt er fá annaðhvort með gaskyndingu eða viðarkyndingu en fyrirtækið kom nýlega með ofna á markað sem þykja þeir allra léttustu á markaðnum sem kallast Diavolo en þeir þykja ofur kraftmiklir gasofnar.
Diavolo ofninn er fisléttur og því auðvelt að ferðast með hann, enda ekki að ástæðulausu að taska fylgir með í kaupunum ásamt spaða, steini, hitamæli og þrýstijafnara. Hann er aðeins 15 mínútur að ná 500°c sem er kjörhiti til að hefja eldamennskuna.
Í dag eru Diavolo ofnarnir á sértilboði hjá Bako Ísberg og er nú aðeins á 59.900 kr.
Hægt er að fá allar upplýsingar um ofna fyrir fagmenn sem og stærri leirofninn hjá sölumönnum Bako Ísberg og Verslunartækni, en fyrirtækin eru nýlega flutt saman að Draghálsi 18, 110 Reykjavík.
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði







