Freisting
Nobu opnar hótel í New York

Robert De Niro fær sér að borða á Nobu í Honolulu
Nobu, sushi veitingahúsakeðjan, ætlar að reisa 200 metra hátt glerhýsi í nágrenni Kauphallarinnar í New York þar sem rekið verður fimm stjörnu hótel með 128 herbergjum og veitingastaður, sem verður fjórði Nobu veitingastaðurinn í New York.
Verður hótelið það fyrsta sem Nobu opnar í Bandaríkjunum en verið er að reisa Nobu hótel í Hezliya Marina við Miðjarðarhafsströnd Ísraels.
Nobu, en einn eiganda keðjunnar er leikarinn Robert De Niro, rekur á annan tug veitingastaða í heiminum.
Framkvæmdir við bygginguna hefjast síðar á árinu og opna á hótelið eftir tvö ár. Auk hótelherbergja og veitingastaðar verður heilsuklúbb, sake-kjallara og kvikmyndaherbergi að finna í glerhýsinu.
Upplýsingar um Nobu-veitingahúsakeðjuna
Greint frá á Mbl.is | Mynd: usatoday.com
-
Keppni1 dagur síðanÍslandsmeistari í kokteilagerð náði 3. sæti á Evrópumótinu á Kýpur
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanEyþór Ás, sonur forseta KM, sækir matreiðslunám alla leið norður til Akureyrar frá Selfossi
-
Keppni3 dagar síðanRóbert Aron Proppé keppir fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í kokteilagerð
-
Markaðurinn1 dagur síðanViltu starfa sem kokkur hjá Fosshóteli Reykholti?
-
Keppni3 dagar síðanBæði íslensku liðin mæta til leiks á fyrsta degi heimsmeistarakeppninnar
-
Markaðurinn3 dagar síðanFosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan„Ómetanlegt að vita hvaðan maturinn kemur“ sagði Dóra. Um 100 manns á stefnumóti á Flúðum – Myndir
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýjung fyrir stóreldhús – Tilbúinn frómas





