Starfsmannavelta
María Rún nýr mannauðsstjóri FoodCo
María Rún Hafliðadóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri hjá veitingafyrirtækinu FoodCo hf. María Rún kemur frá Icelandair þar sem hún starfaði í 16 ár, síðast sem forstöðumaður þjónustusviðs og á árunum 2004-2007 sem forstöðumaður þjónustudeildar og þjónustueftirlits. Þar áður starfaði hún sem þjónustu- og gæðastjóri hjá Kaupþingi og sem fræðslustjóri hjá Vodafone. María Rún er með B.S.-gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Wiesbaden í Þýskalandi og M.S.-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands.
María Rún mun taka við hlutverki mannauðsstjóra í sameinuðu félagi Gleðipinna frá og með næstu áramótum, en eins og nýverið var greint frá hyggjast Gleðipinnar og FoodCo sameinast, með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, undir nafni fyrrnefnda félagsins. Gangi sameiningin eftir munu um 700 manns starfa hjá Gleðipinnum.
Eitt af yfirlýstum markmiðum hins sameinaða félags er að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir starfsfólk og bjóða því m.a. námsstyrki svo það eigi auðveldara með að stunda nám samhliða vinnu.
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun16 klukkustundir síðan„Sorglegt að þetta þurfi að fara á samfélagsmiðla til að borgin vakni“
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFrá síldartunnum til viskítunna
-
Markaðurinn6 dagar síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Markaðurinn6 dagar síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanC.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu



