Freisting
Víninnflytjendur geta gert milljónakröfur á hafnir landsins eftir dóm héraðsdóms í gær

Víninnflytjendur gætu gert milljóna króna kröfur á hendur höfnum landsins eftir að héraðsdómur Reykjavíkur kvað í gær upp þann úrskurð að Faxaflóahöfnum hefði verið óheimilt að setja hærra vörugjald á áfengi en á óáfenga drykki.
HOB vín ehf stefndi Faxaflóahöfnum, sem eru Reykjavíkurhöfn, Grundartangahöfn, Akraneshöfn og Borgarneshöfn, en krafa HOB vína var að viðurkennt væri að hærri álagning vörugjalda á áfenga drykki væri ólögleg og bætur greiddar vegna greiðslu slíkra gjalda árið 2006, 2007 og 2008. Faxaflóahafnir lögðu hærri gjöld á áfengi en aðrar drykkjarvörur, en þetta kemur fram á vef pressan.is
HOB vín sendi Faxaflóahöfnum bréf og spurði hver munurinn væri á kostnaði við að skipa upp áfengi eða óáfengum drykkjum og gátu Faxaflóahafnir ekki svarað því en vitnuðu til hefðar og að vörum sé raðað í flokka þannig að þær greiði svipaða prósentu af útsöluverði vöru af hverju tonni sem komi í land.
Aðalkrafa HOB byggði á því að álagningin væri ólögleg og samræmdist ekki almennum reglum og kröfum stjórnsýsluréttar. Gjaldskrá fyrir óáfenga drykki var þriðjungi lægri en á áfengi og var það mat HOB að hafnirnar gætu ekki sýnt fram á að gjaldskráin miðaði við raunkostnað og ekki sé meiri kostnaður við að flytja inn eitt bretti af gosi en eitt bretti af bjór.
Í dómi héraðsdóms kemur fram að jafnvel þó Faxaflóahafnir séu reknar sem sameignarfélag, gildi almennar stjórnsýslureglur um reksturinn. Og jafnframt kvað héraðsdómur upp þann úrskurð að álagning vörugjalds óháð kostnaði við þjónustu og hlutdeild í sameiginlegum rekstri hafi verið ólögmæt og brjóti í bága við stjórnarskrá.
Faxaflóahafnir voru því dæmdar til að greiða HOB vínum tæplega 800.000 krónur fyrir ofgreidd gjöld og hálfa milljón í málskostnað.
Hægt er að lesa alla fréttina á pressan.is, með því að smella hér.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Markaðurinn4 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Áhugavert3 klukkustundir síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Markaðurinn4 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt2 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið
-
Markaðurinn2 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið



