Uppskriftir
Sítrónukjúklingur með Ólífum og Kóriander
Þennan kjúklingarétt var ég með á grískum matseðli sem ég setti saman fyrir Gríska viku á Café Óperu í febrúar 1998. Þessi er bara skrambi góður.
Þetta er uppskrift fyrir 4-6 manns:
1/2 tsk kanilduft
1/2 tsk turmeric
1 stór eða 2 litlir kjúklingar
30 ml olía
1 stór laukur sneiddur þunnt
1 msk fersk rifinn engiferrót
600 ml kjúklingasoð
2 stk sítrónur skornar í báta og síðan í tvennt
75 gr grænar góðar ólífur
15 ml tært hunang
Salt og pipar
Korianderlauf til skreytinga
1- Hitið ofninn í 190 gráður. Blandið saman í skál turmeric, kanel, salti og pipar og nuddið kjúklingin jafnt upp úr kryddblöndunni.
2- Hitið olíuna í stórum potti eða á stórri pönnu og brúnið kjúklingin jafnt á öllum hliðum. Færið kjúklingin upp á ofnfast fat.
3- Bætið lauknum á pönnuna og steikið í 3 mínútur. Setjið saxað engifer í pönnuna ásamt kjúklingasoði, látið sjóða við vægan hita. Hellið yfir kjúklinginn og lokið forminu með t.d. álpappír. Bakið í 30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
4- Takið úr ofninum og bætið sítrónum, ólífum og hunangi saman við, bakið áfram í 30 mínútur með engu loki eða álpappír yfir.
5- Að bökun lokinni skal strá söxuðu kóriander yfir og smakka réttin til.
Skreytt með kórianderlaufum og framreitt strax. Hentugt meðlæti er t.d. góð Jógúrtsósa, Grískt salat og Ólífubrauð.
Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari
-
Markaðurinn7 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Starfsmannavelta3 dagar síðan„Því miður dugði það ekki til“ eigendur Sjávarsetursins tilkynna lokun
-
Markaðurinn5 dagar síðanNýtt íslenskt kerfi einfaldar máltíðapantanir, dregur úr matarsóun og tengist öðrum kerfum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanDuck & Rose lokar á konudag – nýr staður tekur við undir nafninu Gamla Reykjavík
-
Keppni3 dagar síðanAuddi Blö og Steindi Jr. verða kynnar á úrslitakvöldi Tipsý Bar
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýtt hjá Garra: Mabrúka, handgerð krydd frá Túnis
-
Bocuse d´Or1 dagur síðan„Að gefast aldrei upp“, segir Sædís Hui í Bocuse d’Or teyminu
-
Markaðurinn5 dagar síðanÞarf alltaf að kaupa nýtt?





