Frétt
Engin salmonella finnst í svínakjöti
Nú stendur yfir skimun á örverum í kjöti á markaði sem að Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Matvælastofnun, í samvinnu við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga standa fyrir.
Fyrstu niðurstöður benda til þess að salmonellu sé ekki að finna í svínakjöti.
Sjá einnig: Skimun á sjúkdómsvaldandi örverum í kjöti á markað
Miklar forvarnir eru viðhafðar hérlendis við eldi og slátrun svína til að koma í veg fyrir að afurðir svínakjöts fari á markað sem síðar meir geta sýkt neytendur af salmonellu. Tekin eru sýni við slátrun til að fylgjast með ástandi afurða og sannreyna fyrirbyggjandi aðgerðir gegn mengun við slátrun.
Tíðni salmonellumengunar við slátrun svína hefur verið lág undanfarin ár, ef undanskilin er snögg aukning á árinu 2009 (11,2%). Síðan þá hefur tíðnin haldist lág og var 0,5% árið 2017.
Í dag er krafist vottorða um sýnatöku vegna salmonellu með erlendu kjöti og gerð krafa um að það hafi verið fryst í 30 daga.
Skimunin er gerð til að kanna árangur þessara forvarna við eldi, slátrun og flutning á svínakjöti til landsins. Kannað er ástand svínakjöts af innlendum eða erlendum uppruna, þegar neytandinn fær það í hendur í verslunum.
Tekin hafa verið 45 sýni og þar af voru 3 af erlendum uppruna.
Salmonella hefur ekki greinst í sýnunum. Það bendir til þess að forvarnir í eldi og við slátrun svína skili árangri.
Nánari uppýsingar um eftirlit með salmonellu í svínarækt er hægt að nálgast hér.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Keppni12 klukkustundir síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Markaðurinn19 klukkustundir síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Frétt3 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020



