Vertu memm

SSS-Sveitin

Marshall – Veitingarýni

Birting:

þann

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Á veitingastaðnum ræður ríkjum Leifur Kolbeinsson (t.h.) sem er einna þekktastur fyrir rekstur La Primavera og Kolabrautina.

Um miðjan mars opnaði Marshallhúsið eftir allsherjar endurbætur og upplyftingu. Í húsinu er m.a. Nýlistasafnið, Kling og Bang ásamt sýningarsal og vinnustofu Ólafs Elíassonar. Veitingasalurinn er á fyrstu hæðinni. Þar ræður ríkjum Leifur Kolbeinsson sem er einna þekktastur fyrir rekstur La Primavera og Kolabrautina.

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Í húsinu er m.a. Nýlistasafnið, Kling og Bang ásamt sýningarsal og vinnustofu Ólafs Elíassonar.

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Veitingasalurinn er á fyrstu hæðinni í Marshallhúsinu

Við félagarnir vorum forvitnir, í ljósi frábærra fyrri kynna, að sjá hvað hann bíður upp á í nýjum húsakynnum. Hér er ekki bara ítalskt í boði, það gætir franskra og spænskra áhrifa. Miðjarðarhafsmatreiðsla er vinsæl í dag. Hollusta í fyrirrúmi.

Salurinn er stór, opinn og bjartur án þess þó að vera yfirþyrmandi. Manni líður þægilega hér og útsýnið til hafnarinnar spillir ekki fyrir. Menningarlykt Faxamjölsverksmiðjunar eymir enn er inn í húsið er komið, án þess þó að trufli nokkuð enda var það þáttur hússins frá 1948.

En þessi nýbreytni sem ræður ríkjum hér á landi að breyta gömlum húsum í veitingahús verið hafa bara tekist nokkuð vel hér. Borðbúnaður sem og húsgögn eru gæði í gegn og sómir sér vel. Þá var á borðinu piparkvörn og gróft sjávarsalt sem gestir geta notað til bragðaukningar enda kom á daginn að varlega er farið með krydd í eldhúsinu nema náttúruleg.

Matseðill

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Focaccia brauð og hummus

„Fyrst kom á borðið nýbakað gott Focaccia brauð og hummus.“

Forréttir

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Gullkarfa krúdó, capers og blóðappelsínu vinaigrette – Verð: 1890.-

„Marineraðar gullkarfasneiðar, varlega kryddaðar þannig að fiskurinn fékk að njóta sín. Ferskt og fínt.“

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Hrá hörpuskel úr Breiðafirði með ólífuolíu, sítrónu, svörtum radísum og granateplum – Verð: 2310.-

„Ferskleikinn í fyrirrúmi og engu ofaukið.“

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Parmaskinka á glóðuðu brauði með geitaostasósu – Verð: 2980.-

„Virkilega góð samsetning. Volgur geitaosturinn sem er upprunninn frá Frakklandi gaf bragðmiklum réttinum unaðslegan karakter. Bráðnaði í munni.“

Aðalréttir

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Tagliolini með skelfisk, „Nduja“, lime og koriander – Verð: 4310.-

„Í heimalöguðu pastanu mátti finna humar, hörpuskel og risarækjur. „Nduja“ er (ítölsk), gerjuð svínapylsa, krydduð m. a. með chili sem gefur réttinum gott, sterkt og afgerandi bragð.“

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Grillaður skarkoli á beini með ansjósum, hvítlauk, capers og steinselju – Verð: 4480.-

„Góð eldun. Hér ræður einfaldleikinn og ferskt hráefnið fær að njóta sín til fulls.“

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Grillaðar lambakótilettur með balsamik og rauðsalati – Verð: 4210.-

„Mátulega eldað, kjötið meyrt og gott. Beiskjan í kálinu og balsamedikið gaf þessum rétti ferskan og suðrænan blæ.“

Eftirréttir

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Ostakaka la Vina – Verð: 1600.-

„Uppskriftin af þessari köku fann Leifur á Spáni. Hún er öðruvísi en aðrar ostakökur, virkilega góð og þarfnast einskis meðlætis.“

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Súkkulaðikaka og ís – Verð: 1600.-

„Þessi var ekta, súkkulaðibragðið ekki of yfirgnæfandi.“

Marshall veitingastaður - Marshallhúsið

Pistasíukaka og rjómi – Verð: 1600.-

„Einfalt og gott. Pístasíubragðið gerði kökuna virkilega ljúfa.“

Niðurstaða

Á Marshall fær hráefnið að njóta sín. Engar bragðsprengjur og ekkert verið að yfirhlaða réttina með ónauðsynlegum aukaatriðum. Einfaldleikinn getur oft verið bestur eins og sannast hér.

Þjónustan var fagleg og fumlaus, var til staðar þegar á þurfti að halda. Við fengum nóg af diskum til að deila sem er gott þegar smakka á fleiri rétti í einu.

Við óskum Leifi til hamingju með nýjan og glæsilegan stað.

Við gengum sælir og sáttir út í sumarnóttina.

Þeir félagar Sigurður Einarsson, Sigurvin Gunnarsson og Smári Valtýr Sæbjörnsson skipa SSS sveitina. Hér er á ferðinni matreiðslumenn hoknir af áratuga reynslu í veitingabransanum. Hægt er að hafa samband við SSS sveitina á netfangið: [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið