Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Salatsjoppan er nýr skyndibitastaður á Akureyri
Salatsjoppan er nýr skyndibitastaður við Tryggvabraut 22 á Akureyri þar sem salat verður í aðalhlutverki. Staðurinn opnaði nú á dögunum og er opinn allan daginn og fram eftir kvöldi. Eigendur eru Karen Sigurbjörnsdóttir og Davíð Kristinsson.
Matseðillinn er girnilegur og í boði er fjölbreytt úrval af salötum með kjúklingi, beikoni, túnfiski, hægeldaðar nautakinnar svo fátt eitt sé nefnt, en gestir geta líka valið sér sjálfir hráefnið í salatið.
Matseðill:



Eigendur:

Karen Sigurbjörnsdóttir er eigandi og rekstrarstjóri staðarins. Hún er nýútskrifuð úr sálfræði en lengi hefur það verið draumur að reka eigin veitingastað – alveg frá því að hún ætlaði að taka við Greifanum af pabba sínum.

Davíð Kristinsson er annar af tveimur eigendum Salatsjoppunnar. Davíð er heilsu- og næringarþjálfari og rekur líkamsræktarstöðina Heilsuþjálfun á efri hæðum byggingarinnar við Tryggvabraut 22, þar sem Salatsjoppan verður til húsa. Hann hefur gefið út nokkrar bækur um næringu og lífsstíl í gegnum tíðina og haldið fræðslufyrirlestra um land allt fyrir fjölda fólks. Davíð sinnir ráðgjöf við matseðla og uppskriftir ásamt því að koma húsnæðinu í stand.
Prufukeyrsla:
https://www.instagram.com/p/BSUuBlNBnqD/
Með fylgja nokkar myndir frá framkvæmdunum:
Myndir: facebook / Salatsjoppan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Áhugavert2 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Markaðurinn6 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Keppni1 dagur síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt20 klukkustundir síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Markaðurinn6 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið








