Vertu memm

Keppni

Ottó og Bradley skiluðu á tíma með þrautseigju – Bradley á spítala í miðri keppni – Myndir og vídeó

Birting:

þann

Heimsmeistarakeppni í klakaskurði - Ice Alaska - 2017

Bradley Groszkiewicz og Ottó Magnússon í „Single Block“ keppninni

Ottó Magnússon matreiðslumaður og Bradley Groszkiewicz keppa saman í heimsmeistaramóti í klakaskurði í Fairbanks í Alaska.  Fyrsti áfangi í keppninni er nú lokið þar sem þeir félagar kepptu í „Single Block“ flokknum, en þar fengu keppendur einn ísklump sem er 242cm x 152cm x 91cm að stærð og fengu 60 klukkustundir til þess að skera úr honum listaverk að eigin vali.

Heimsmeistarakeppni í klakaskurði - Ice Alaska - 2017

Það gekk ekki slysalaust fyrir sig að gera þetta listaverk, en hafðist þó með þrautseigju

Það voru 50 lið sem kepptu „Single Block“ og ekki var keppnin slysalaus, en á fyrsta degi botnaði ísklumpurinn og það tók um hálfan dag að frysta allt aftur saman.  Svo hófst dagur tvö, en þar meiddist Bradley og var hann í 5 klukkutíma á spítala.

„Það er í lagi með hann núna“

, sagði Ottó, aðspurður um líðan hans.

Dagur þrjú og Ottó og Bradley skiluðu á tíma með þrautseigju.  Því miður komust Ottó og Bradley ekki á verðlaunapall í „Single Block“.

Í meðfylgjandi myndbandi má nokkur íslistaverk í „Single Block“ keppninni:

„Ekki kvarta yfir veðrinu heima, það er bara 30 stiga frost hér“

, sagði Ottó hress í samtali við veitingageirinnn.is.

Næsta keppni: 40 tonn af ís

Heimsmeistarakeppni í klakaskurði - Ice Alaska - 2017

F.v. Ottó Magnússon, Bradley Groszkiewicz, Aaron Pencar og Jeff Kaiser

Núna bætast tveir við lið þeirra Bradley og Ottó, en það eru þeir Jeff Kaiser og Aaron Pencar.  Í næsta áfanga keppir liðið í “Multi Block” og er sú keppni mun stærri í sniðum, en þar fá keppendur tíu ísklumpa sem eru 182cm x 121cm x 91cm að stærð og 6 daga til að skera út listaverk að eigin vali.  19 lið keppa í “Multi Block”.

Heimsmeistarakeppni í klakaskurði - Ice Alaska - 2017

Liðið er komið á fulla ferð

Heimsmeistarakeppni í klakaskurði - Ice Alaska - 2017

Heimsmeistarakeppni í klakaskurði - Ice Alaska - 2017

Áætlað er að um 40 tonn af ís fari í listaverkið Sólfarið

Vídeó frá fyrsta degi “Multi Block” keppninnar:

Næsta þema sem liðið hefur valið sér er mörgum Íslendingum kunnugt en það er Sólfarið við Sæbrautina.  Til gamans má geta að Bradley er fyrrum heimsmeistari í “Multi Block”, en hann sigraði keppnina árið 2014.  Aaron Pencar er þaulreyndur ísskurðameistari, en hann hefur verið atvinnumaður í ísskurði í 14 ár og unnið til fjölda verðlauna.

Veitingageirinn.is mun fylgjast vel með þeim félögum með reglulegum fréttaflutningi fram yfir keppni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið