Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýtt 300 herbergja hótel á Grensásvegi

Hótelið mun rísa á gatnamótum Grensásvegar og Suðurlandsbrautar. Þar er nú Kvikmyndaskóli Íslands til húsa og áður voru þar höfuðstöðvar Hitaveitu Reykjavíkur og Mannvits
Stefnt er að því að á þessu ári hefjist framkvæmdir við nýtt fjögurra stjörnu 300 herbergja hótel á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar, en það yrði stærsta hótel landsins í fermetrum talið og næststærsta hótel landsins í herbergjum talið á eftir Fosshótelinu á Höfðatorgi.
Unnið er að samningum við erlenda hótelkeðju um rekstur hótelsins, en keðjan rekur ekki önnur hótel hér á landi. Heildarfjárfesting vegna verkefnisins er um 10 milljarðar króna og áætlað er að opna það fyrir sumarið 2019, að því er fram kemur á mbl.is sem fjallar nánar um hótelið hér.
Mynd/teikning: Batteríið arkitektar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Markaðurinn6 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Frétt5 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 klukkustundir síðanNýtt mötuneyti opnað hjá Verkís á Akureyri – Myndir
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Markaðurinn10 klukkustundir síðanSuperMeals heldur áfram að þróast: kiosk-lausn tilbúin og símaveski á loka metrum


