Vertu memm

Matthías Þórarinsson

Kaffitár opnar á Nýbýlaveginum | Björn Bragi matreiðslumaður tók vel á móti freisting.is

Birting:

þann

kaffitar_080220136

Freisting.is leit við á Nýbýlaveginum en þar er Kaffitár er að fara að opna bakarí, bakvinnslueldhús fyrir kaffihúsin sín og kaffihús sem verður á jarðhæðinni framan við bakaríið, auk þess sem skrifstofur og kennsluaðstaða verður samankomin undir einu þaki.

Eins og myndirnar bera með sér voru nokkur handtök eftir en áætluð opnun er í apríl byrjun.  Við hittum fyrir Björn Braga Bragason en kappinn sá er matreiðslumaður og bransanum að góðu kunnur og fullur bjartsýni á að þetta hafist allt á réttum tíma.

Vinnuaðstaðan mun stækka tífalt frá því sem nú er og til gamans þá sagði Björn mér að gólfflötur í nýja kæli og frystinum er það pláss sem þau hafa úr að moða í dag!  Verður spennandi að líta við þegar nær dregur og sjá breytingarnar sem átt hafa sér stað.

 

8.2.2013

Myndir og texti: Matthías

Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið