Freisting
Sigrún ráðin sem ráðgjafi sjúkrasjóðs hjá MATVÍS

Þann 1. ágúst síðastliðinn var Sigrún Sigurðardóttir ráðin sem ráðgjafi sjúkrasjóðs hjá MATVÍS. Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaganna og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs.
Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.
Sigrún er með skrifstofu að Stórhöfða 27 og vinnutíminn er þriðjudaga, föstudaga og annan hvorn miðvikudag. Netfang hennar er [email protected]
Hlutverk ráðgjafa er að veita einstaklingum aðstoð við að viðhalda og efla virkni til vinnu. Hann býður öllum félagsmönnum sem sækja um dagpeningagreiðslur hjá sjúkrasjóði upp á þjónustu og aðstoð, einnig þeim félagsmönnum sem geta ekki eða eiga erfitt með að sinna sínum störfum eins og er vegna heilsu. Það geta verið einstaklingar sem eru í veikindaleyfi eða jafnvel ennþá í starfi.
Stuðningurinn tekur mið af þörfum og væntingum hvers og eins. En hér eru nokkur dæmi um þann stuðning sem stendur félagsmönnum til boða:
Sem dæmi um þennan stuðning má nefna:
-
Ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af aðstæðum einstaklings.
-
Mat á starfshæfni sem tekur mið af bæði heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
-
Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og endurhæfingu.
-
Aðstoð og leiðbeiningar til að tryggt sé að viðkomandi einstaklingur fái það sem honum ber innan kerfisins.
-
Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á stöðu einstaklings hverju sinni. Hér getur t.d. verið um að ræða aðstoð lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
-
Aðstoð í formi stuðnings til náms sem hefur það að markmiði að auka vinnugetu einstaklings.
-
Aðstoð í formi skipulagðrar starfsendurhæfingar þar sem einstaklingurinn, atvinnurekandinn og mismunandi fagaðilar vinna saman við að finna leiðir til aukinnar vinnugetu.
Sjá nánar um Starfsendurhæfingu á vef www.virk.is
Greint frá á Matvis.is
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag



