KM
Þrjár matreiðslukeppnir á þremur dögum

Alfreð Ómar Alfreðsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, og Margrét Sveinbjörnsdóttir, kynningar- og verkefnastjóri sýningarinnar Ferðalög og frístundir, við undirritun samnings um keppnirnar þrjár.
Klúbbur matreiðslumeistara stendur fyrir þremur matreiðslukeppnum á þremur dögum á sýningunni Ferðalög og frístundir sem haldin verður í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 8.-10. maí nk. Sú fyrsta, sem fram fer föstudaginn 8. maí, ber yfirskriftina Matreiðslumaður ársins, önnur keppnin, Matreiðslumeistari Norðurlanda, fer fram laugardaginn 9. maí og landshlutakeppnin Íslenskt eldhús 2009 verður haldin sunnudaginn 10. maí. Á sýningunni Ferðalög og frístundir sameinast á einum stað allt sem viðkemur ferðalögum, frístundum og afþreyingu, innanlands og utan. Sýningin Golf 2009 verður haldin samhliða Ferðalögum og frístundum og kjarninn í ferðasýningunni verður Ferðatorgið, þar sem ferðamálasamtök landsins kynna hvert sinn landshluta og ferðaþjónustu á sínu svæði. Á Matartorginu verða svo matreiðslukeppnirnar þrjár, en matarmenning er samofin velheppnuðum ferðalögum og frístundum og fellur því vel að sýningunni.
Matreiðslumaður ársins:
Keppnin Matreiðslumaður ársins fer fram föstudaginn 8. maí. Sú keppni hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1994.
Þar hafa fjölmargir færir matreiðslumenn komið fram á sjónarsviðið og síðan gert garðinn frægan í öðrum keppnum. Sigur í keppninni Matreiðslumaður ársins veitir keppnisrétt í keppnunum Matreiðslumeistari Norðurlanda, Global Chef Challenge, One World competition o.fl. Oft hafa keppendur þurft að kafa djúpt í reynslubankann, þar sem skylduhráefni hefur verið t.d. nýru, lifur, ferskir hrútspungar, kúfskel, hörpuskel og lambaframpartur, svo nokkur dæmi séu nefnd.
Matreiðslumeistari Norðurlanda:
Samtímis sýningunni fer fram í Reykjavík Norðurlandaþing Klúbbs matreiðslumeistara. Í tengslum við þingið verður haldin keppnin Matreiðslumaður ársins á Norðurlöndum, sem ennfremur fer fram á sýningunni Ferðalög og frístundir laugardaginn 9. maí og verður keppt í fimm keppniseldhúsum fyrir framan sýningargesti. Norræna keppnin er haldin árlega en hún var síðast haldin hér á landi árið 1999. Verðlaun til sigurvegara keppnanna Matreiðslumaður ársins og Matreiðslumeistari Norðurlanda verða afhent við sameiginlega athöfn síðdegis laugardaginn 9. maí.
Íslenskt eldhús 2009 það besta úr matarkistu hvers landshluta:
Rúsínan í pylsuendanum verður svo matreiðslukeppni landshlutanna, Íslenskt eldhús 2009, sem fram fer á sama stað sunnudaginn 10. maí. Keppnin er haldin af Klúbbi matreiðslumeistara og sýningunni Ferðalögum og frístundum. Landshlutarnir senda keppendur og dómara til þátttöku og notar hver keppandi hráefni sem tengist viðkomandi landshluta. Markmið keppninnar er að kynna það besta sem hver landshluti hefur upp á að bjóða í mat og vekja athygli á því sem Ísland hefur upp á að bjóða sem matarkista. Keppendur koma frá Vestfjörðum, Austurlandi, Norðurlandi, höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðurnesjum, en síðastnefndu landshlutarnir tveir sameinast um einn keppanda. Tilkynnt verður um úrslit við formlega athöfn í lok dagsins, þar sem veitt verða verðlaunin Íslenskt eldhús 2009. Keppt verður fyrir opnum tjöldum, þannig að gestum gefst færi á að fylgjast með matreiðslumeisturunum að störfum og gildir það um allar þrjár keppnirnar.
Framkvæmdaraðili sýningarinnar Ferðalaga og frístunda er AP almannatengsl og samstarfsaðilar iðnaðarráðuneytið, Ferðamálasamtök Íslands, Ferðamálastofa, Golfsamband Íslands og Icelandair. Starfsmenn AP almannatengsla hafa áralanga reynslu í stjórnun stærri jafnt sem minni viðburða og hafa m.a. séð um sýningarnar Verk og vit 2006 og 2008 og Tækni og vit 2007. Nánari upplýsingar er að finna á www.ferdalogogfristundir.is.
Nánari upplýsingar veita:
Margrét Sveinbjörnsdóttir, kynningar- og verkefnastjóri sýningarinnar Ferðalög og frístundir, í síma 514 1430 eða 863 7694.
Bjarki Hilmarsson, matreiðslumeistari og umsjónarmaður allra keppnanna, í síma 895 8057.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt2 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Keppni6 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Keppni1 dagur síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn6 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?





