Smári Valtýr Sæbjörnsson
Mataraðstöðu Best Western Hotel Reykjavík breytt – Myndir fyrir og eftir breytingu
Best Western Hótel Reykjavík hefur gengið í gegnum miklar breytingar á síðastliðnum vikum. Öll neðsta hæðin hefur verið tekin í gegn og skartar nú hótelið einni flottustu morgunverðar-, bar- og kvöldverðaraðstöðu í miðbæ Reykjavíkur. Það var Björn Skaptason hjá Atelier arkitektum sem sá um hönnun og framkvæmd á aðstöðunni.
„Við erum afskaplega stolt af þessum breytingum og okkur þykir þær hafa heppnast virkilega vel. Að loka heilu hóteli vegna breytinga er alltaf stór ákvörðun en þetta hefur gengið vonum framar og við erum virkilega sátt með útkomuna,“
segir hótelstýran Alexandra Gyða Frímannsdóttir.
Hótelið, sem staðsett er í hjarta Reykjavíkur, hefur gengið í gegnum mikla endurnýjun á síðastliðnum árum. Nýlega var nokkrum hótelherbergjum einnig breytt í svokölluð Character herbergi. Þetta eru þau herbergi sem staðsett eru í þeim hluta byggingarinnar sem hýsti Ölgerðina, fyrsta íslenska brugghúsið, hér árum áður.
Í dag má sjá greinileg ummerki Ölgerðarinnar í herbergjunum, þar á meðal gamla bruggpotta og fleira.
Myndir: aðsendar.
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Markaðurinn7 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu
-
Markaðurinn4 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn5 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Frétt5 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu




