Vertu memm

Markaðurinn

Myndir frá Stéphane Leroux námskeiðinu

Birting:

þann

Stéphane Leroux námskeið

Eggert Jónsson og Stéphane Leroux

Ísam Horeca í samstarfi við Belcolade hélt námskeið þar sem Stéphane Leroux fór vel og vandlega yfir höndlun súkkulaðis.

Námskeiðið var vel sótt þann 28. maí s.l. á Vox Club.

Fyrir hlé fór hann yfir gerð nokkurra tegunda af konfekti ásamt nokkrar gerðir af eftirréttum og kökum.

Í hléinu var hægt að smakka konfektið, eftirréttina og kökurnar.  Sævar Már Sveinsson frá Mekka Wines & Spirits kynnti Sandeman púrtvín sem passaði frábærlega við konfektið.

Stéphane Leroux námskeið

Sævar Már Sveinsson og Stéphane Leroux

Eftir hlé fór Stéphane í gerð súkkulaðiskreytinga, en þar setti hann saman stóra súkkulaðistyttu og virtist í höndum hans að hver sem er gæti gert svona.

Stéphane Leroux námskeið

Listaverk úr súkkulaði

Stéphane var búinn að forvinna verkið áður en námskeiðið hófst, en svo tók hann upp á því að búa til formin úr ótrúlegustu hlutum sem hann fann í kringum sig.  Hver hefði haldið að hægt væri að nota gólfdúk, grillbursta og plastrenning í að búa til svona súkkulaðistyttu?

Stéphane Leroux námskeið

Stéphane Leroux námskeið

Námskeiðið var vel sótt

Stéphane var mjög hrifinn af landi og þjóð og sagði okkur að hann vill gjarnan koma aftur sem fyrst,

sagði Hrefna Þórisdóttir, þjónustufulltrúi Ísam Horeca.

Meðfylgjandi myndir eru frá námskeiðinu:

 

Myndir: isam.is

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið