Uncategorized @is
Langflestir hrífast af hrefnukjöti
Á efri hæð Byggðasafnsins í Garðinum er veitingahúsið Tveir Vitar sem dregur nafn sitt af vitunum tveimur sem er helsta kennileiti Garðskagans. Sumarið þar hefur verið annasamt og segja eigendurnir Ásbjörn Pálsson og Ingibjörg Sigríður Ármannsdóttir að síðan þau tóku við rekstrinum fyrir þremur árum hafi gestafjöldi farið stigvaxandi.
„Þetta gengur bara rosalega vel, það er mikið um hópa sem koma til okkar. Hóparnir samanstanda mest af erlendum ferðamönnum sem fara í ferð um Reykjanesið með ferðaskrifstofu. Þau byrja oftast á því að fara í Bláa Lónið, síðan er ýmislegt skoðað á svæðinu og endað í kvöldmat hjá okkur áður en farið er í flug,“ segir Ásbjörn í samtali við Víkurfréttir.
Um helgar má oft heyra íslensku á staðnum en færst hefur í aukana að Íslendingar af höfuðborgarsvæðinu fari í dagsferð um Reykjanesið, enda ekki löng keyrsla. Tveir Vitar bjóða upp á kvöldverð frá kl. 17 og fram eftir kvöldi á virkum dögum sem og um helgar, en staðurinn opnar hins vegar um hádegi og þá eru kökur og kaffi á boðstólnum fram eftir degi.
Ásbjörn segir mikilvægt að bjóða upp á fjölbreyttan matseðil en einnig veki það lukku hjá gestum að bjóða upp á ferskt hráefni af svæðinu.
„Við höfum boðið upp á bleikju, skelfisk og krækling sem við fáum á Suðurnesjunum. Hrefnukjöt hefur verið vinsælt hjá okkur meðal erlendra ferðamanna og eru langflestir hrifnir af því.“
Greint frá á vf.is
Mynd úr safni: Smári
Twitter og Instagram: #veitingageirinn
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndir: Veislusýning Múlabergs fór fram úr væntingum
-
Keppni2 dagar síðanSkráning í tvær eftirsóttustu matreiðslukeppnir landsins hafin
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanMyndir: Bakaradeildin í Hótel- og matvælaskólanum tók þátt í Tyllidögum
-
Frétt3 dagar síðanGrunur um salmonellu í kjúklingalærum frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjúklingabringur í ljúffengri rjóma- og sweet chili sósu
-
Frétt6 dagar síðanReyndir fagmenn skipa nýja stjórn Klúbbs Framreiðslumeistara
-
Food & fun7 dagar síðanÞessir gestakokkar heimsækja Ísland í tilefni Food & Fun
-
Food & fun4 dagar síðanFood & Fun 2026: Allar bókanir fara fram á Dineout í ár





