Pistlar
Ferðaþjónustan sem láglaunastétt er valkostur, en ekki lögmál
Að undanförnu hefur umræðan í ferðaþjónustu snúist um hvort og hvernig eigi að taka gjald af ferðamönnum. Sumir ferðamannastaðir hafa þegar hafið gjaldtöku að okkar helstu náttúruperlum, án samráðs og í sátt við ferðaþjónustuna og ríkisvaldið. Öll umræða endurspeglar stefnuleysi í ferðaþjónustu, en það hefur valdið því að í dag ríkir algjört Klondik æði í greininni sem á eftir að skaða hana til framtíðar.
Ísland á að byggja sína ferðaþjónustu á gæðum en ekki fjölda. Í þessu sambandi má benda á staði eins og Mallorca og Benedorm þar sem fjöldi en ekki gæði var hafður í fyrirrúmi. Í lok tíundaáratugarins ákváðu ferðamályfirvöld á Mallorca að breyta ímynd eyjunnar þannig að gæði en ekki fjöldi var sett í fyrsta sæti, þetta tókst ekki vegna þess að ímynd eyjarinnar var svo sterk sem staður fyrir „ódýra“ ferðamenn að breytt ímynd var ekki tekin alvarlega. Ef við gætum ekki að okkur verðum við á sama stað og Mallorca og Benedorm innan mjög skamms tíma og þá er ekki aftur snúið, eins og þessi dæmi sýna.
Í fyrri grein minn Færri en „dýrari“ ferðamenn; er það draumsýn eða raunhæfur kostur? talaði ég um að stefnumörkun og menntun í ferðaþjónustu verða að fara saman ef vel á að takast til.
En hvað er til ráða? Sem dæmi bendi ég á eftirfarandi: Í lok níunda áratugarins stóð ég fyrir því, sem formaður SVG ( nú SAF ) ásamt fulltrúum Flugleiða, Reykjavíkurborgar og Ferðamálaráðs,að Ráðstefnuskrifstofa Ísland var stofnuð. Tilgangur hennar var að auka sölu á alþjóðlegum ráðstefnum og hvataferðum til landsins (sem eru „dýrustu“ ferðamennirnir ). Stefnan sem mörkuð var í upphafi var að markaðasetja ísland sem land fyrir alþjóðlegar ráðstefnur- og hvataferðir, en grundvöllurinn fyrir því að það mætti takast var bygging rástefnuhúss og fimm stjörnu alþjóðlegt hótel. Því miður var ráðstefnuskrifstofunni stungið ofaní skúffu hjá Ferðamálaráði, fljótlega eftir að ég fór að starfa erlendis fyrir IHG, sem gerði það að verkum að ekki var byrjað að markaðssetja Hörpu fyrir ráðstefnur fyrr en ári eftir að hún kom í rekstur.
Nú hefur þessu sem betur fer verið snúið við með tilkomu Reykjavík Convention Bureau sem byggir á sömu hugmyndafræði og ráðstefnuskrifstofan byggði á. Ég tel að þeir sem eru í forsvari á þeim bæ hafi þegar rekið sig á að ef takast eigi að markaðssetja Ísland sem ráðstefnuland þurfum við fimm stjörnu hótel, en til þess að geta rekið fimm stjörnu hótel þurfum við vel menntað fólk, eða með öðrum orðum; gæði, menntun og betri kjör fara saman.
Wilhelm W.G.Wessman
hótelráðgjafi, leiðsögumaður og framhaldsskólakennari m.m.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt7 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt6 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn3 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Food & fun2 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn






