Frétt
Wilhelm Wessman fallinn frá
Wilhelm Wessman, einn kunnasti og virtasti frumkvöðull landsins á sviði hótel- og veitingareksturs, lést á Landspítalanum mánudaginn 3. ágúst, 84 ára að aldri. Frá þessu er greint á mbl.is.
Wilhelm átti langan og farsælan feril í íslenskri ferðaþjónustu. Hann hóf störf á Hótel Sögu árið 1967 og gegndi þar fjölbreyttum stjórnunarstörfum um árabil. Síðar varð hann hótelstjóri Holiday Inn í Reykjavík og starfaði einnig erlendis fyrir InterContinental Hotels Group.
Wilhelm miðlaði jafnframt þekkingu sinni til næstu kynslóða, meðal annars sem gestakennari við Hótel- og veitingaskóla Íslands.
Wilhelm fæddist 2. október 1942 á Höfn í Hornafirði. Eftirlifandi eiginkona hans er Ólöf Wessman og eignuðust þau þrjú börn.
Nánar má lesa um ævi og störf Wilhelms Wessman á mbl.is.
Í gegnum árin birtust hér á Veitingageirinn.is ófáir pistlar eftir Wilhelm þar sem hann miðlaði af áratuga reynslu sinni úr hótel- og veitingageiranum.
Mynd: úr einkasafni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn7 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð




