Freisting
Franskir trufflubændur í vanda

Trufflan er aðalútflutningsvara og það sem laðar túrista til litla smábæjarinns Richerenches er að hann er mekka trufflunnar í Frakklandi, en nú er henni ógnað af kínverskri trufflu og það í sjálfu mekka matarins á heimaslóð, en menn vilja meina að þetta sé bara eftirlíking, bragðminni og hefur kemiskt yfirbragð og þar af leiðandi mun ódýrari.
Trufflan selst nú um stundir fyrir stjarnfræðilegar upphæðir og eftirspurnin eykst stöðugt, en þurrkar hafa seinkað uppskerunni, verðið á markaðinum er 500 evrur til 1000 evrur fyrir kílóið eða kr.
60000 120000 vel að merkja á markaðinum í áðurnefndum bæ, en þegar það er komið í gourmet verslanir í París, hefur verðið minnst tvöfaldað sig og jafnvel meira.
Um það bil 30 tonn eru framleitt af trufflum ár hvert í Frakklandi, 2-300 trufflubændur koma á markaðinn í bænum á hverju laugardegi í árstíðinni (season) frá miðjum nóvember til enda mars mánaðar.
Á hverju ári eru málaferli gegn þeim sem eru að reyna að selja þá kínversku sem franska og getur sektin verið allt 1,6 milljón króna.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn7 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð



