Markaðurinn
Fastus tekur í sölu Quality Fry: lyktarlaus, örugg og einföld djúpsteiking
Veitingastaðir, barir og matarvagnar geta nú boðið upp á stökkar franskar, kjúklingabita eða aðra djúpsteikta smárétti án þess að setja upp loftræstiháf, án steikingarlyktar og án þess að starfsfólk komi nálægt heitri olíu.
Engin lykt, enginn háfur og bragð smitast ekki á milli hráefna.
Quality Fry djúpsteiking fer fram í lokuðu kerfi með innbyggðu hreinsikerfi sem fangar gufu og lykt, svo út fer aðeins hreint og þurrt loft. Því þarf hvorki háf né sérstakt loftræstikerfi og hægt er að koma tækinu fyrir nánast hvar sem er í eldhúsinu, á bak við barinn eða í matarvagninum.
Bragð smitast heldur ekki á milli hráefna. Það má steikja franskar, fisk eða Churros hvert á eftir öðru, og hver réttur heldur sínu bragði. Því þarf ekki aðskilda pottar fyrir mismunandi hráefni og auðvelt er að bjóða upp á fjölbreyttan matseðil með aðeins einu tæki.
Hver sem er getur steikt
Notkunin er einföld. Hráefnið er sett í hólf, rétt kerfi valið á snertiskjánum og tækið sér um restina. Forstillingar tryggja að útkoman er alltaf sú sama, sama hver steikir. Hver sem er á vaktinni getur því séð um steikinguna, hvort sem það eru barþjónar, afgreiðslufólk eða starfsfólk í sal.
Steikingartíminn er styttri og olíunotkunin minni, sem sparar bæði tíma og rekstrarkostnað.
Quality Fry hentar sérstaklega vel fyrir veitingastaði, bari og krár, matarvagna og kaffihús, en einnig fyrir hótel, bensínstöðvar, verslanir, afþreyingarstaði og skip. Tækið nýtist alls staðar þar sem eftirspurn er eftir heitum mat en aðstaða fyrir hefðbundið eldhús er ekki til staðar.
Til sýnis á Stóreldhúsinu 2026
Sjón er sögu ríkari og því mun Fastus sýna Quality Fry djúpsteikingu á sýningarbás sínum á Stóreldhúsinu í Laugardalshöll dagana 5. og 6. nóvember. Einnig verður hægt að skoða tækið í sýningarsal Fastus lausna að Höfðabakka 7 að sýningu lokinni.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum






