Frétt
Eldur kom upp í veitingastað á Selfossi
Eldur kviknaði í veitingastaðnum Fröken Selfoss í miðbænum á Selfossi í morgun. Reykkafarar frá Brunavörnum Árnessýslu náðu að slökkva eldinn, en talsverð vinna er fram undan við reykræstingu og hreinsun vegna reykskemmda.
Samkvæmt frétt Vísis urðu iðnaðarmenn sem voru að störfum í næsta húsi eldsins varir um klukkan átta í morgun og tilkynntu hann þegar í stað til slökkviliðs.
Veitingastaðurinn, sem er staðsettur við Brúarstræti 12, var mannlaus þegar eldurinn kviknaði. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið fullt af reyk og voru reykkafarar sendir inn til að ráða niðurlögum eldsins.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir í samtali við Vísi að veruleg eftirvinna sé fram undan vegna reyksins sem fylgdi eldinum.
„Það verður örugglega alveg talsverð eftirvinna vegna reyks. Það fylgir þessu náttúrulega svo mikil lykt,“
er haft eftir Pétri í fréttinni.
Ekki liggur enn fyrir hvað olli eldsupptökunum og er orsök brunans til rannsóknar.
Mynd: facebook / Miðbær Selfoss
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni5 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Frétt3 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Frétt5 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís




