Markaðurinn
Yfirkokkur/Verkstjóri óskast
Marinar ehf. óskar eftir að ráða einstakling með menntun á sviði matargerðar og/eða með haldbæra starfsreynslu í matvælageiranum.
Starfið felur í sér faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á daglegum rekstri afkastamikils atvinnueldhúss. Um fullt starf er að ræða.
Viðkomandi þarf að búa yfir stjórnunarreynslu og hafa góða þekkingu á HACCP ásamt því að vera úrræðagóður og framúrskarandi leiðtogi.
Viðkomandi hefur yfirumsjón með framleiðslu og vinnslu á hráefnum. Einnig innifelur starfið starfsmannastjórnun eldhússtarfsmanna.
Starfs- og ábyrgðarsvið
Almenn starfsmannastjórnun, vaktaplön, frammistöðumat og þjálfun starfsmanna
Skipulagning og gæðastjórnun á framleiðslu í eldhúsi
Hefur eftirlit með hráefnanýtingu og birgðastýringu
Framleiðsla á mat og réttum samkvæmt uppskriftum
Vöruþróun á nýjum réttum og gerð eldunarleiðbeininga
Innleiðir, viðheldur og framfylgir HACCP kerfi fyrirtækisins eða sambærilegu matvælakerfi
Skráningar og skjalavinnslaÖnnur tengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði matreiðslu og/eða reynsla í matvælageiranum
Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar
Þekking/Reynsla af vinnu og tækjabúnaði í iðnaðareldhúsum
Mjög góð skipulags-, áætlanagerðar- og ákvörðunartökuhæfni
Mjög góð þekking á matvælaöryggi, HACCP kerfum og gæðastjórnun
Rík hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma
Skipulagshæfileikar og metnaður í starfi
Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Íris Bettý Alfreðsdóttir Frederiksen ráðgjafi hjá HH Ráðgjöf Ráðningarþjónustu hefur umsjón með ráðningu í starfið og veitir frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða í tölvupósti [email protected]
Sótt er um starfið á heimasíðu HH Ráðgjafar Ráðningarþjónustu www.hhr.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanObo diner opnar brátt á Egilsstöðum með nýju yfirbragði
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel10 klukkustundir síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Markaðurinn5 dagar síðanRekstraraðili óskast fyrir veitingarekstur í Edinborgarhúsinu
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanReksturinn náði ekki nægri veltu
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanSt Leonard’s lokar eftir fimm ára rekstur
-
Markaðurinn5 dagar síðanGazpacho súpa sem svalar á heitum sumardögum
-
Markaðurinn7 dagar síðanLangt geymsluþol og minni sóun með Frischli jógúrt
-
Frétt6 dagar síðanKaup Dranga á Brauð & Co. undirrituð



