Markaðurinn
Fosshótel Jökulsárlón leitar að kokki í fullt starf
Ertu að leita þér að skemmtilegri vinnu í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Fosshótel Jökulsárlón óskar eftir að ráða til sín kokka í eldhúsið. Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.
Starfssvið
Umsjón, skipulagning og þátttaka í matreiðslu og bakstri
Frágangur, þrif, uppvask á aðstöðu og búnaði
Frágangur og geymsla á matvælum
Eftirlit með hreinlæti og vinnubrögðum samkvæmt HACCP
Aðstoð við innkaup og birgðaumsjón í samráði við yfirmann
Aðkoma að gerð matseðla í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur
Menntun og reynsla af matreiðslu er skilyrði
Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
Frumkvæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum
Öryggisvitund og þekking á HACCP kostu
Húsnæði er í boði á staðnum gegn greiðslu.
Hótelið er fyrsta flokks 4 stjörnu hótel sem opnaði á Hnappavöllum við rætur Öræfajökuls í júní 2016. Í nágrenni hótelsins er eitt vinsælasta göngusvæði landsins. Hótelið er því kjörið fyrir útivistarfólk og fjallageitur, enda er úr meira en hundrað gönguleiðum að velja og útsýnið stórfenglegt til allra átta.
Lærðu meira um Fosshótel Jökulsárlón.
Fullt starf
Umsóknarfrestur: 14. apríl 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni4 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni4 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt2 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Frétt4 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026




