Vín, drykkir og keppni
Jólabjórinn mætir 7. nóvember
Tuborg J-dagurinn haldinn hátíðlegur
Þá er loksins komið að deginum sem margir hafa beðið eftir, því 7. nóvember fellur ‚snjórinn‘ í Danmörku og að sjálfsögðu fögnum við því hér heima. Sala á jólabjór Tuborg hefst með pompi og prakt klukkan 20:59 og markar sá tími árlegt upphaf jólatímans í augum margra bjórunnenda.
J-dagurinn, eða „Julebryg-dagurinn“ eins og hann er nefndur í Danmörku, hefur verið haldinn hátíðlegur þar í landi frá árinu 1990. Þá aka bláir jólabílar Tuborg um göturnar með jólasveina í sínum einkennislitum, sem bera út bjórinn og gleðina. Hefðin hefur síðan breiðst út og víða er haldið upp á daginn með danska sjarma, góðum bjór og hátíðlegu andrúmslofti.
Hinn klassíski Tuborg Julebryg er dökkur lagerbjór með mildum karamellukeim, maltinu fylgir léttur sætleiki og kryddaður ilmur sem minnir á jólabakstur. Bjórinn hefur 5,6 prósent alkóhól og hefur í gegnum árin notið mikilla vinsælda bæði í Danmörku og hér á Íslandi.
Á Íslandi er Bjórgarðurinn við Þórunnartún 1 í Reykjavík einn vinsælasti samkomustaður J-dagsins. Þar koma saman bjórunnendur og þeir sem kunna að meta góða stemningu, tónlist og bragðgóðan mat. Boðið verður upp á hátíðarstemningu og jólagleði langt fram á kvöld þegar fyrsta flaskan af jólabjórnum er opnuð.
Það má með sanni segja að jólahátíðin hefjist fyrir alvöru þegar J-dagurinn rennur upp og fyrsta sopa af Tuborg Julebryg er lyft til heiðurs jólunum.
-
Markaðurinn7 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið
-
Markaðurinn6 dagar síðanVandaðar skreytingar geta skipt sköpum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr kafli hefst í sögu Noma
-
Frétt5 dagar síðanNói Síríus lækkar verð á súkkulaði um 10%
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanGrös opnar í Skúlagarði með áherslu á hráefni úr heimabyggð
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanGeorges Duboeuf snýr aftur á íslenskan markað
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanHrefna Sætran sæmd fálkaorðunni fyrir framlag sitt til veitingageirans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun21 klukkustund síðanBreskir sigurvegarar í fish and chips-keppni heillaðir af íslenskum sjávarútvegi



