Freisting
1.000 manns í grillveislu

Bjarni penslar skrokkinn með marineringu (úr hvítlauk, bjór og maltöli),
Gunnar Karl mundar hnífinn
Vegna kynningar á sjónvarpsþáttunum „Eldum íslenskt“ sem nú eru til sýninga á sjónvarpsstöðinni ÍNN og mbl.is, var heill nautsskrokkur grillaður á grilli LK við verslun Krónunnar á Granda í Reykjavík í gær. Mæltist framtakið afar vel fyrir og fengu um 1.000 manns að borða grillað nautakjöt, með bernaisesósu og fersku grænmeti frá SFG.
Byrjað var að skera nautið um kl. 16 í gær og var eftir það samfelld biðröð við skurðarbrettið til kl. 19.15 er allt kjöt var upp urið og verslunin lokaði. Var afar ánægjulegt að sjá hvað gestum og gangandi líkaði maturinn vel. Skrokkurinn var 200 kg UN 1 A frá Sláturhúsinu Hellu hf, af grip frá þeim Sigurjóni og Sigríði Lóu á Efstu-Grund undir Eyjafjöllum. Talsvert var spurt um uppruna kjötsins og var ánægjulegt að geta sagt frá því.
Eldamennskan tók rúmlega 20 klukkustundir, en kveikt var upp í grillinu um kl. 19 í fyrrakvöld. Bjarni G. Kristinsson yfirmatreiðslumeistari Hótel Sögu bar hitann og þungann af matreiðslunni, einnig lögðu matreiðslumennirnir Guðmundur Guðmundsson, Ægir Friðgeirsson og Gunnar Karl Gíslason gjörva hönd á plóg. Umsjón með kynningunni var í höndum Tjörva Bjarnasonar, sviðsstjóra útgáfu- og kynningarsviðs BÍ.
Fleiri myndir frá grillveislunni er hægt að skoða með því að smella hér
Mynd og texti: naut.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun10 klukkustundir síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn3 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn2 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt7 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni3 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni2 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september



