Starfsmannavelta
Þröstur hættir á Atlantic og er á leið í olíubransann
Þröstur Magnússon matreiðslumaður hefur starfað sem yfirmatreiðslumaður hjá Radisson Blu Atlantic í Stavanger í Noregi í 5 ár, en hann segir á facebook sinni að hann sé hættur hótelbransanum og er á leið í olíubransann.
Freisting.is forvitnaðist aðeins um starfið hans á Atlantic, ákvörðun um að hætta og um nýja starfið: „Ég er búinn að starfa á Atlantic í 5 ár og er búinn að gera ansi margt nýtt þar, t.a.m. cook and chill sem varla þekktist hérna úti sem er alveg með ólíkindum. Við erum ekki búnir að finna arftakann minn í þetta starf, en það var ekki auðvelt að láta þessa stöðu frá sér þar sem hún er búin að vera ansi krefjandi og skemmtileg hér á Atlantic.
Hvert er nýja starfið?
„Starfið mitt er sem yfirkokkur hjá olíufyrirtæki sem heitir Total og snýst það mest um „fine dining“ kantinu með VIP hádegisverði sem eru pantaðir fyrirfram og svo af og til kvöldveislur fyrir ca. 150 manns í 6-7 réttar, ansi spennandi og frábær vinnutími þ.e. 07:00 – 15:00 virka daga og frí um helgar“.
Þröstur hættir á Atlantic í byrjun júlí og þá verður farið í 5 vikna sumarfrí og svo verður hafið nýtt starf í kringum 8. ágúst næstkomandi. Við óskum Þresti vel farnaðar og að sjálfsögðu komum við til með að fylgjast með kappanum í nýja starfinu.
Fyrir áhugasama þá er hægt að sækja um stöðu yfirmatreiðslumann á Atlantic sem hér segir:
Yfirmatreiðslumaður
Vi søker ny kjøkkensjef. Vi søker en person med stor fagkunnskap og som er stolt av faget sitt og har et sterkt ønske om å få ta i bruk sine egenskaper, erfaring og kunnskap til å rendyrke og utvikle gode matkonsepter for kjøkkene på Atlantic. Vi er opptatt av å levere god mat med et smil som overgår kundens forventninger. Vi kan tilby en arbeidsplass med et team av unge medarbeidere som er opptatt av å levere hver gang. Her er det stor variasjon og mange utviklingsmuligheter. Kjøkkensjefen er ansvarlig for drift av begge kjøkken med daglig drift, bemanning og det forventes god kjøkkenøkonomi.Krav til stillingen som kjøkkensjef: – kokkefagbrev, samt flere års erfaring som kokk/soussjef/kjøkkensjef – kunnskap om hygienearbeid – Kunnskap om IK-mat og hccp – gode økonomikunnskaper Før den rette personen så er utviklingsmulighetene store både når det gjelder faglige utfordringer, menyplanlegging, ledelse, oa. For den som viser stort interesse og pågangsmot kan vi tilby gode lønsbetingelser, hyggelige kollegaer og varierende arbeid i en spennande bransje. I tillegg er det ønskelig at du – prater norsk, eventuelt engelsk – har grunnleggende datakunnskap.
Nánari upplýsingar gefur Þröstur Magnusson núverandi yfirkokkur [email protected]
Mynd: Aðsend
-
Markaðurinn4 dagar síðanInnnes auglýsir spennandi sölustarf
-
Keppni4 dagar síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn
-
Starfsmannavelta7 dagar síðanSkúrinn í Stykkishólmi stefnir á lokun eftir 11 ára rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýjar íslenskar kartöflur vekja alltaf eftirvæntingu
-
Markaðurinn4 dagar síðanNý uppskera af íslensku spergilkáli komin í verslanir
-
Frétt6 dagar síðanVeitingastaðir gætu sótt meiri tekjur í ís yfir veturinn
-
Frétt2 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað



