Sverrir Halldórsson
Herrakvöld Kótilettufélags Togarajaxla | „..orðinn spenntur fyrir næstu veislu hjá þeim“
Herrakvöld Kótilettufélags Togarajaxla var haldið fimmtudagskvöldið 5. desember s.l. í Turninum. Uppistaðan í þessum hópi er fyrrverandi áhafnameðlimir á nýsköpunar- togaranum Hafliða sem gerður var út frá Siglufirði. Heimasíða þeirra er á vefslóðinni si2.is, og geta menn fræðst þar um viðkomandi félagsskap.
Við félagarnir náðum að koma okkur inn í þennann hóp og mættum á Herrakvöldið þeirra.
Á matseðlinum var:
Drykkjarföng voru malt og appelsín.
Lúbarðar lambakótilettur í raspi, sérvaldar og ekki fitusnyrtar, með sykurbrúnuðum kartöflum, grænum baunum, asíum, rauðkáli, rababarasultu, brúnni sósu og feiti.
Smakkaðist þetta alveg fantavel og því miður er leitun að svona góðum lettum á veitingastöðum borgarinnar.
Svo sagði Ásmundur Friðriksson sjóarasögur af mikilli innlifun og skellihló salurinn trekk í trekk, einnig tók til máls einn af forsvarsmönnum hópsins og gaf hann lítið eftir í sögum af sjónum, en þetta eru svona sögur sem sagðar voru þarna inni en fara ekki lengra.
Svo kom Ábætirinn og var þar boðið upp á coctailávexti með 3 tegundum af ís og þeyttum rjóma eins og var í gamla daga á sjónum á sunnudögum.
Þessi skemmtun var alveg þess virði að mæta og er ég orðinn spenntur fyrir næstu veislu hjá þeim.
Meðfylgjandi ljósmyndir tók Birgir Ingimarsson og eru birtar hér með góðfúslegu leyfi hans.
![]()
-
Keppni6 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn6 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Frétt6 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Markaðurinn5 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
-
Markaðurinn4 dagar síðanÞjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði
-
Markaðurinn3 dagar síðanSveppapizza með burrata sem setur nýjan svip á pizzakvöldið








