Markaðurinn
Ylmurinn í eldhúsinu er svo lokkandi…Nýtt frá Kryddhúsinu
Hátíðarkryddblöndur Kryddhússins eru Jólaglöggskryddblandan og Kalkúnakryddið, jurtablanda.
Handgerða Jólaglöggskryddsblanda Kryddhússins er nú fáanleg.
Hún er dásamleg í glögg, áfengt sem og óáfengt. Hér koma saman „jóla“krydd eins og kanill, stjörnuanís, allrahanda, negull og fleiri dásamleg, náttúrulega sæt og vermandi krydd ásamt þurrkaðri appelsínu. Öll þessi brögð fara svo vel með t.d. svínakjöti þannig að það er tilvalið að nota hana í að krydda purusteikina.
Einnig dásamleg í sýrópið fyrir kokteilinn eða í eftirréttasósuna m.m.
Ylmurinn í eldhúsinu verður lokkandi þegar þessi blanda er hituð og hún færir svo sannarlega jólin til þín og þinna!
Kalkúnakrydd, jurtablanda er ný fyrir þessi jól. Hér notar Omry eigandi Kryddhússins dásamlegar klassískar jurtir eins og salvíu, steinselju, timían ofl. nema hvað hann bætir um betur og setur myntu, kóríanderlauf, basilikku ofl. sem dýpkar bragð og tekur bragðlaukana á vit ævintýranna! Kryddið er að sjálfsögðu án allra aukefna og Vegan eins og öll kryddlína Kryddhússins.
Heimasíða: www.kryddhus.is
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn1 dagur síðanLíður að jólum
-
Pistlar1 dagur síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember










