Vertu memm

Íslandsmót barþjóna

Vertu virkur – Opið bréf til starfandi barþjóna á Íslandi

Birting:

þann

barþjónn

Kæri barþjónn, Barþjónaklúbbur Íslands langar til að fá þig til liðs við sig.  Þér er boðið á kynningarfund mánudaginn 16. september á Lebowski bar á Laugavegi kl. 21.00.  Starfsfólk Ölgerðarinnar verða á staðnum og munu þeir bjóða upp á drykki fyrir alla sem mæta á fundinn.

Breyttar reglur klúbbsins gera það að verkum að ef þú ert starfandi barþjónn á veitingastað á Íslandi getur þú gengið í klúbbinn og tekið virkan þátt í að efla kokteilamenningu landsins með þátttöku þinni.

Þú þarft ekki að vera lærður framreiðslumaður til að hafa þátttökurétt á Íslandsmeistaramóti barþjóna og átt möguleika á að keppa á næsta heimsmeistaramóti barþjóna í Suður-Afríku 2014 heldur eingöngu að vera skapandi, metnaðarfullur og faglegur barþjónn sem getur gert vinnustað sinn stoltan af framlægi þínu.

Kynnt verður vetrarstarf klúbbsins og fyrirhugaðar keppnir í blöndun ýmissa drykkja eins og afréttarakokteila, Toddýs eða kuldakokteila og margt fleira. Keppandi má nota heimatilbúin hráefni í þessháttar keppnir.

Til að vera með þarft þú að skrá þig í klúbbinn.

Einnig verður kynnt spennandi dagskrá í kringum Íslandsmeistaramótið og vinnustaðakeppnina í febrúar.

Fréttatilkynning frá bar.is

 

Mynd úr safni: Axel

/Smári

Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið