Uppskriftir
Uppskrift – Smassborgara „Big Mac“ með Amerískri hamborgarasósu
Þessa dagana eru allir sjúkir í smassborgara og af góðri ástæðu! Smassborgarar eru sérstaklega ljúffengir, vel brúnaðir og safaríkir þar sem þeir eru steiktir í stutta stund við mjög háan hita.
Ég elda mína smassborgara á sama máta og In-N-Out borgarakeðjan í Bandaríkjunum, en sú eldunaraðferð felur í sér að lausmóta buff úr nautahakki, hita steypujárnspönnu á svimandi háan hita og nota svo flatan steikarspaða til þess að fletja borgarann kröftuglega niður á rjúkandi heita pönnuna svo hann verði mjög þunnur og fái sem besta brúnun.
Til þess að fletja borgarann sem best út þarf flatan steikarspaða og svo eitthvað annað áhald til þess að þrýsta niður á steikarspaðann eins og t.d. kartöflustappara.
Hérna geri ég smassborgara útgáfu af Big Mac borgaranum fræga en þá þykir mér American Style hamborgarasósan frá Heinz alveg smellpassa með.
Fyrir 2:
Heinz American Style Burger Sauce, eftir smekk
Ungnautahakk, 240 g
Hamborgarabrauð lítil (Með sesam), 4 stk
Amerískur ostur í sneiðum, 4 sneiðar / Fæst t.d. í Krónunni
Íssalat, 25 g
Súr gúrka, 2 stk
Laukur, 1 stk
Franskar kartöflur
Smjör eftir þörfum
Aðferð:
-
Mótið fjórar 60 gramma kúlur úr ungnautahakkinu. Varist að þjappa kjötinu of mikið saman.
-
Sneiðið lauk og súra gúrkur eftir smekk.
-
Bræðið smá smjör á pönnu og ristið hamborgarabrauðin þar til þau eru fallega gyllt. Við ætlum að rista 4 botna en aðeins 2 toppa svo við getum myndað þennan klassíska 2 hæða „Big Mac“.
-
Þar sem borgararnir eru mjög fljótir að steikjast er best að vera með hamborgarabrauðin klár áður en byrjað er að steikja.
-
Smyrjið brauðin með Heinz American Style hamborgarasósu, raðið káli í botn brauðin, lauk og súrum gúrkum í topp brauðin.
-
Nuddið ögn af olíu á steypujárnspönnu og bíðið þar til hún er rjúkandi heit. Setjið 2 kjöt kúlur á pönnuna og notið stálspaðana til að fletja kúlurnar kröftuglega niður. Saltið kjötið rausnarlega og piprið. Steikið í um 1 mín áður en þið snúið og setjið ost á kjötið. Setjið lok á pönnuna og bíðið í 20-30 sek þar til osturinn er bráðnaður. Endurtakið með restina af kjötinu.
-
Raðið saman borgurunum og berið fram með frönskum kartöflum.
Uppskrift og mynd: Matur og Myndir | Snorri Guðmundsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn6 dagar síðanVönduð JÖNI veltipanna til sölu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla
-
Markaðurinn5 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Markaðurinn6 dagar síðanTilbúnar pizzur í gastróstærð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanOpnaði draumabarinn eftir sjö ára velgengni
-
Frétt4 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt3 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver



