Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Uppbygging Íslandshótela í miðbæ Akureyrar
Íslandshótel hafa samið við arkitektastofuna Kollgátu um hönnun á allt að 120 herbergja hóteli í miðbæ Akureyrar á reit sem kenndur er við Sjallann. Hótelið mun verða rekið undir nafni Fosshótela.
Eins og fram hefur komið þá keyptu Norðureignir ehf, sem er dótturfélag Íslandshótela, Sjallann og þann byggingrétt sem fylgir eigninni í fyrra. Unnið er að hönnun hótelsins í góðu samstarfi við bæjaryfirvöld og verða fyrstu drög kynnt fljótlega. Þar sem um mikilvæga byggingu er að ræða verður í hönnun hússins tekið mið af sögu Sjallans.
Það er mikill vaxtarbroddur í ferðamennsku á Norðurlandi en spáð hefur verið allt að 20% fjölgun ferðamanna á þessu ári. Íslandshótel taka þátt í uppbyggingunni á svæðinu og sem dæmi var Fosshótel Húsavík nýlega endurbætt verulega og er nú orðið að stærsta ráðstefnuhóteli Norðurlands. Þessi gríðarlega aukning ferðamanna fyrir Norðan hefur aðallega verið yfir sumartímann en vetrarferðamennskan hefur átt erfiðara uppdráttar. Líklegt er að auknar flugsamgöngur, opnun á Vaðlaheiðargöngunum og Demantshringnum árið 2018 muni verða til þess að Norðurlandið verði eftirsóttur kostur fyrir ferðamenn yfir verartímann. Íslandshótel eru að leggja sitt að mörkum til að efla Norðurlandið sem áfangastað allt árið. Fyrirhugað að hið nýja hótel verði að hluta skíðahótel sem mun án efa hafa jákvæð áhrif á vetrarferðir fyrir landssvæðið en Norðurlandið býður upp á mestan fjölda af skíðasvæðum á Íslandi.
Framkvæmdin, sem verður í höndum Beka ehf, fer fram í tveimur áföngum þar sem þeim fyrri verður lokið 2018. Bygging hótelsins mun verða góð innspýting fyrir vinnumarkaðinn á Akureyri þar sem mikill fjöldi mun starfa við framkvæmdina sjálfa auk þess sem við opnun hótelsins munu verða til um 40-50 starfsgildi.
Mynd aðsend: Hörður Finnbogason
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Bocuse d´Or5 klukkustundir síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or






