Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Undirbúa nýjan og spennandi veitingastað í Firði
Ráðist hefur verið í miklar breytingar í veitingahúsarýminu á annarri hæðinni í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði, þar sem áður var veitingahúsið Silfur.
Að baki breytingunum standa Árni Björn Ómarsson, Ketill Sigurðsson, Helgi Sverrisson og Þórir Árnason. Þeir hafa síðustu árin rekið Hótel Hlíð í Ölfusi með góðum árangri.
Spurður um nýja veitingastaðinn segir Árni Björn að í bígerð sé að bjóða upp á matargerð í anda þess besta sem tíðkast við Miðjarðarhafið í bland við íslenska matargerð. Boðið verður upp á hlaðborð í hádeginu á virkum dögum en um helgar tekur brönsinn yfir. Á kvöldin verður fjölbreyttur og spennandi matseðill alla daga vikunnar. Þá verður boðið upp á ekta „high tea“ síðdegis alla daga.
„Þetta er spennandi tækifæri og ótrúlega gaman að byggja upp veitingahús á þessum stað. Staðsetningin er frábær og útsýnið eitt það besta í bænum. Við leggjum mikinn metnað í matseðilinn og að skapa hlýlega og notalega stemningu sem vonandi mun falla gestum okkar vel í geð,“
segir Árni Björn.
Stefnt er að opnun veitingahússins um mánaðamótin apríl maí næstkomandi.
Mynd: aðsend
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or7 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni3 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn4 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn3 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur






