Markaðurinn
Því færri verðlaunakokkar, þeim mun betri maturinn er
Já, Jónas Kallinn er nú ekki að skafa af hlutunum þegar kemur að skrifum hans um veitingastaði, en á heimasíðu hans má lesa t.a.m. að Grillið, Sjávarkjallarinn hafi „Lyppast“ niður, en þett las Bransinn á síðu hans:
-
Eyðimörk matargerðar
Lyppast hafa niður matstaðir, sem áður voru góðir, frægastir Grillið á Sögu og Sjávarkjallarinn í Geysishúsinu. Mér er sagt, að senn muni Holtið rísa úr öskustó. Ekki veitir af, því að matreiðslu hefur farið aftur í borginni á síðustu árum. Sommelier og Maru hættu og Apótekið er að hætta. Sumir nýir staðir eru sjónhverfingar, líklega settir upp til að vaska peninga úr fíknibransanum. Ég borða á Primavera og Tjörninni, Þremur frökkum og Austur-Indíafélaginu, Laugaási og Tilverunni, Sægreifanum og Kínahúsinu, Jómfrúnni og heima. Því færri verðlaun kokkanna, þeim mun betri matur.jonas.is/veitingar
Það eru til fjölmargar sögur um kallinn í gegnum árin um að hann hafi hreinlega ekki gert greinamun á þeim hráefnum sem borið var á borð til hans. Það er nú bara þannig þegar enginn metnaður er að kynna sér um hvernig veitingagagnrýnandi eigi að bera sig að í rýnum sínum, þá verða skrifin eftir því.
Erlendir veitingagagnrýnendur á virtum tímaritum ofl., setjast á skólabekk og læra allt um að vera góður gagnrýnandi, en því miður er skortur á metnaði hjá rýnum hér á klakanum.
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember



