Freisting
Þúsund manns í Hilton-veislu

Hilton merkið sett upp á Hilton Reykjavik Nordica
Meira en eitt þúsund manns hefur verið boðið í glæsilega opnunarveislu Hilton Reykjavík Nordica-hótelsins í dag. Saga Film ætlar að skapa ævintýralegan blæ í veislunni þar sem eldfjöll, jöklar og hverir verða áberandi.
Kokkar frá veitingastaðnum Vox munu jafnframt sjá um að elda dýrindismat ofan í gestina, en greint er frá þessu í Fréttablaðinu í gær. Þetta verður skemmtilegt partí þar sem við ætlum að leyfa gestunum að upplifa þetta alþjóðlega umhverfi sem við vinnum í,“ segir Ingólfur Haraldsson hótelstjóri. Þetta verður þannig séð ekkert of formlegt heldur meira bara gaman. Við erum að sýna okkur og leyfa fólkinu að sýna sig.“
Yoko Ono var einn af fyrstu gestunum á nýja Hilton-hótelinu er hún var stödd hérlendis á dögunum. Það var einmitt á Amsterdam Hilton sem hún og John Lennon héldu fyrstu rúmmótmælin gegn stríðinu í Víetnam. Hún er einn af okkar fastagestum,“ segir Ingólfur sem leyfði Ono vitaskuld að gista í einni af svítunum.
Fyrsta Hilton-hótelið opnaði í Texas árið 1919. Stofnandi hótelkeðjunnar, Conrad Hilton, var langafi Parísar Hilton og afi hennar, Barron Hilton er enn í stjórn Hilton-keðjunnar. Alls eru Hilton-hótelin um heim allan orðin tæplega fimm hundruð talsins og hefur Ísland nú bæst í hópinn. Við höfum verið að vinna í því undanfarna mánuði eða ár að koma þeim til Íslands. Þetta er viðurkenning á því sem við erum að gera og sýnir að við erum á þessum alþjóðlega staðli,“ segir Ingólfur.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn1 dagur síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Markaðurinn7 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt4 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast
-
Keppni11 klukkustundir síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni


