Markaðurinn
Tandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
Fjórar nýjar Svansvottaðar vörur bætast við vöruframboð fyrirtækisins

Guðrún Lilja Umhverfis- og orkustofnun, Brynleifur gæðastjóri Tandur, Arnar framkvæmdarstjóri Tandur og Erwin Shala frá Tandur.
Tandur steig á dögunum mikilvægt framfaraskref fyrir íslenska framleiðslu þegar fyrirtækið hlaut Svansvottun fyrir fjórar vörur í flokki snyrtivara, fyrst íslenskra fyrirtækja.
Svansmerkið þekkja íslenskir neytendur vel. Það er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem tekur til alls lífsferils vöru og þjónustu. Svansmerkið staðfestir að vörur uppfylli strangar kröfur um umhverfi, heilsu og gæði. Svansvottuð vara er betri fyrir bæði umhverfið og heilsuna.
Tandur var fyrst fyrirtækja á Norðurlöndunum til að sækja um Svansvottun í þessum vöruflokki og fyrst til þess að hljóta slíka vottun á Íslandi.
Með vottuninni bætast því við fjórar Svansvottaðar vörur í vöruframboð Tandur; Hand- og Baðsápa sem meðal annars er notuð í sundlaugum Reykjavíkur, SH-41 handsápa fyrir matvælaiðnað, Softex froðusápa og Handex handsápa.
Að geta boðið upp á Svansvottaða vöru í flokki snyrtivara þar sem gestafjöldi er mikill og ekki má gefa eftir í gæðum er afar mikilvægt. Það á vel við og er raunin í Sundlaugum Reykjavíkur og nágrennis, þar er Hand- og Baðsápa frá Tandur í notkun. Gestir geta því verið vissir um að gætt sé að gæðum, öryggi og umhverfissjónarmiðum.
„Við erum gríðarlega stolt af þessum áfanga. Að verða fyrst til að Svansvotta vörur í flokki snyrtivara er mikilvægt framfaraskref fyrir íslenska framleiðslu og staðfestir þann metnað sem við leggjum í að þróa umhverfisvænar og vandaðar vörur,“
segir Arnar Garðarsson framkvæmdarstjóri Tandur.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Tandur hlýtur Svansvottun. Árið 2018 fékk fyrirtækið Svansvottun fyrir þrjár vörur í flokki hreinlætisvara og var þá einnig fyrst fyrirtækja til að Svansvotta vörur í þeim flokki.
Tandur er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á Íslandi með umhverfissjónarmið, gæði og öryggi að leiðarljósi. Vegferð Tandur hvað varðar Svansvottanir er hvergi nærri hætt heldur rétt að byrja en í góðu samstarfi við Umhverfis- og orkustofnun er stefnan sett á að Svansvotta fleiri vörur á komandi mánuðum.
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or19 klukkustundir síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Bocuse d´Or24 klukkustundir síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Frétt5 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila









