Frétt
Tæplega helmingur landsmanna ætlar að nýta sér hótelgistingu á ferðalögum innanlands í sumar
Um níu af hverjum tíu landsmönnum ætla í ferðalag innanlands í sumar (júní-ágúst) þar sem gist er eina nótt eða lengur samkvæmt nýrri könnun Ferðamálastofu og ætlar tæplega helmingur að gista á hóteli. Þrátt fyrir að stór hluti landsmanna hafi fengið bólusetningu að einhverju eða öllu leyti þá virðist það ekki hafa breytt afstöðu manna til utanlandsferða frá því sem var í upphafi árs.
Könnunin sem framkvæmd var af Gallup dagana 14.-27. maí samanstendur af sex spurningum um ferðaáform landsmanna næstu þrjá mánuði en sömu spurnirngar voru lagðar fyrir fyrr á árinu (jan-feb).
Niðurstöðurnar sýna:
- 91,3% landsmanna ætla að ferðast innanlands í sumar.
- Landsmenn gera ráð fyrir að fara í að jafnaði 3,1 ferðalag í sumar. Einn af hverjum tíu ætlar í eina ferð, um fjórðungur í tvær ferðir og tæplega fimmtungur þrjár ferðir. Tæplega tveir af hverjum fimm ætla í fjórar eða fleiri ferðir.
- Flestir landsmenn ætla í sumarbústaðaferð eða þrír af hverjum fimm. Þar á eftir koma heimsóknir til vina og ættingja (44%), borgar- og bæjarferð(ir) (44%), ferð(ir) með vinahópi eða klúbbfélögum (36%) og útivistarferð(ir) (32%).
- Tæplega helmingur landsmanna ætlar að nýta sér hótelgistingu á ferðalögum innanlands í sumar. Þeim mun hærri sem fjölskyldutekjurnar eru því líklegra er fólk að nýta sér hótelgistingu. Yngsti aldurshópurinn virðist ekki ætla að nýta hótelgistingu í sama mæli og þeir sem eldri eru.
- Um tveir af hverjum fimm ætla að gista hjá vinum og ættingjum eða í sumarhúsi í einkaeign og um þriðjungur ætlar að gista á skipulögðu tjaldsvæði eða í orlofshúsi félagsamtaka. Aðra tegund gistingar ætla landsmenn að nýta í minna mæli. Yngri aldurshópar eru líklegri að að
- Ferðaáform um utanlandsferðir á árinu hafa ekki breyst frá fyrri mælingu (jan-feb) en um 38,3% ætla að ferðast svipað í ár og í fyrra, 32,3% meira og 29,3% minna.
- Tæplega þrír af hverjum fimm ætla að ferðast álíka mikið innanlands og í fyrra, tæplega þriðjungur meira og einn af hverjum tíu minna. Áform um innanlandsferðir hafa því lítið breyst frá könnuninni sem framkvæmd var fyrr á árinu (jan-feb).

Könnunin var unnin sem netkönnun á tímabilinu 14.-27. maí 2021. Úrtakið var 1.796 einstaklingar, 18 ára og eldri af landinu öllu, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup. Svarfjöldi var 821 einstaklingur og var þátttökuhlutfallið 45,7%. Gögn könnunarinnar voru vigtuð til þess að úrtakið endurspeglaði þýðið með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Framkvæmd og úrvinnsla var í höndum Gallup í samvinnu við Ferðamálastofu.
Niðurstöður könnunar í heild:
Ferðaáform Íslendinga sumarið 2021
Skoða niðurstöður könnunar sem gerð í janúar-febrúar 2021
Mynd: úr safni

-
Markaðurinn14 klukkustundir síðan
Matreiðslumaður óskast á veitingahúsið Sauðá á Sauðárkróki
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Fermingarundirbúningur í brennidepli – Kynningarsýning í Múlabergi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Matarveisla í Reykjavík: Stjörnukokkar töfra fram íslenska sælkerarétti
-
Vín, drykkir og keppni18 klukkustundir síðan
Einstök keppni í dag á Gilligogg – hver hristir besta kokteilinn í Graham’s Blend Series?
-
Markaðurinn20 klukkustundir síðan
Þjónar og barþjónar óskast – spennandi tækifæri
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Vantar kokka á hótel Hellnar og hótel Húsavík
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Skapandi konfektmeistari óskast
-
Keppni2 dagar síðan
Nýr vettvangur fyrir brauð-sérfræðinga: Heimsmeistaramót brauð-sommelier í fyrsta sinn