Markaðurinn
Systurfélögin Ekran og Nathan & Olsen sameinast undir nafninu Nathan
Systurfélögin Ekran og Nathan & Olsen hafa sameinast undir nafninu Nathan. Ari Fenger, forstjóri og einn eigenda félaganna, greinir frá þessu í fréttatilkynningu.
Móðurfélagið, 1912, verður að hans sögn líka hluti af samrunanum. Emmessís verði hins vegar áfram rekið undir því heiti sem sjálfstætt félag.
Ari segir að hingað til hafi Nathan & Olsen verið leiðandi í vörumerkjum á snyrti- og dagvörumarkaði og Ekran sérhæft sig í þjónustu fyrir stóreldhús og matvælaiðnað.
„Nú höfum við sameinað kraftana og sækjum fram til nýrra sigra. Ég er sannfærður um að þetta sé heillaskref sem hjálpar okkur að einfalda hlutina og gera þjónustuna heilt yfir enn sterkari og markvissari. Með þessu hefst nýr kafli í 113 ára sögu okkar sem hófst með stofnun Nathan & Olsen árið 1912.
Ég hlakka til að skrifa næsta kafla með mínu frábæra samstarfsfólki og saman ætlum við að halda áfram að stækka með okkar viðskiptavinum.“
Samhliða samrunanum opnaði Nathan nýja vefverslun; nathan.is.
Allir viðskiptavinir sem áður pöntuðu á www.ekran.is þurfa að endurstilla lykilorðið sitt við fyrstu innskráningu. Þjónustuver og sölumenn Nathan eru boðin og búin til að aðstoða við fyrstu skref og pantanir á nýja vefnum fyrstu dagana.
Fyrir frekari fyrirspurnir og ábendingar er hægt að heyra í sínum sölumanni, þjónustuveri Nathan í síma 530 8500 eða senda línu á [email protected]
Við hlökkum mikið til komandi tíma og áframhaldandi samstarfs með ykkur, meðal annars á nýjum vef!
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Keppni1 dagur síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn




