Freisting
Skötumessa til heiðurs Þorláki Helga

Hún var lögleidd árið 1237 til að minnast þess að þann dag 1198 voru bein Þorláks helga tekin upp og lagðar í skríntil að nýtast til áheita. Var sumarmessa þessi ein mesta hátíð ársins á Íslandi fyrir siðaskipti. Þorlákur helgi er eini íslenski dýrlingurinn í katólskri trú sem hlotið hefur dýrlinganafnbót.
Að þessu sinni var hún haldin Mánudaginn 21. júli í Oddfellowhúsinu í Reykjanesbæ og er þetta í fimmta sinn sem messan er haldin fyrstu 3 árin á Stokkseyri en síðustu 2 árin í Keflavík.
Það er skemmst frá því að segja að húsfyllir var á messunni og sérstakir gestir voru félagar úr Hrútavinir af Suðurlandi, með Bjarna Harðason alþingismann og hagyrðinginn frá Sjónarhóli á Stokkseyri Stefán Jónsson fremsta í flokki.
Er þetta skemmtilegt framtak hjá þessu fólki og vel þegar reynt er að halda á lofti gömlum hefðum.
Heimildir Víkurfréttir og Sunnlenska
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn4 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn4 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn4 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn6 dagar síðanLíður að jólum



