Freisting
Sjötíu tonn af hreindýrakjöti til

Ætla má að rúmlega sjötíu tonn af hreindýrakjöti séu til í landinu eftir nýafstaðið veiðitímabil. Veiðimenn nýta flestir kjötið til einkanota.
Á vefsíðu Ríkisútvarpsins er sagt meðal annars að meðalnýting á hverju dýri er um 60%. Kjöt af hverjum hreindýrstarfi vegur að meðaltali um 80 kíló, á veiðitímabilinu í ár voru felldir 559 tarfar og því má ætla að kjötið vegi tæp 45 tonn. Hreinkýrnar eru umtalsvert léttari en tarfarnir og kjötið sem fellur til af hverri kú að meðaltali 35 kíló. 570 kýr voru felldar, sem gera tæp 20 tonn af kjöti. Áætlað eru að 60 til 70 % kálfa séu felldir með mæðrum sínum eins og mælst er til og vegur kálfakjötið í heild tæp 6 tonn.
Samkvæmt upplýsingum frá Veiðistjórnunarsviði nýta flestir veiðimenn kjötið til einkanota, sé það ætlað til sölu verður lögum samkvæmt að skoða kjötið og votta það. Hjörtur Magnason héraðsdýralæknir á Egilsstöðum annast kjötskoðun á svæðinu. Hann segir flesta skrokka gæðastimplaða. Algengasti galli sé á kviðskotnum dýrum, en þau eru niðurstimpluð með svo kölluðum gorstimpli og ekki talin vænleg söluvara. Sjaldgæft er að beita þurfi sjúkrastimpli en í slíkum tilvikum er kjötið óhæft til neyslu og er umsvifalaust fargað.
Hjörtur segir að veitingamenn borgi að jafnaði um 1600 krónur á kílóið fyrir heila skrokka en allt að 3500 krónur á kílóið fyrir hrygg og læri.
Mynd: Freisting.is | [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Frétt5 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn5 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Markaðurinn4 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslensk matargerð í sviðsljósinu í Barcelona
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag



