Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Sandhótel opnar veitingastað – Tinna og Loftur taka fylgjendur veitingageira snappsins með í ferðalag
Sandhótel á Laugavegi 34a, lúxushótel sem er viðurkennt af Small Luxury Hotels of the World, hefur opnað veitingastað.
Sand Bar & Bistro er veitingastaður í umsjón Tinnu Óðinsdóttur framreiðslumeistara og Lofts Hilmars Loftssonar framreiðslumanns. Matreiðslan á Sand Bar & Bistro er í umsjón Friðleifs „Fidda“ Þrastarssonar og má búast við heillandi matargerð og framúrskarandi vínlista frá þessum aðilum þar sem megin áhersla verður lögð á lífrænt ræktuð og lífefld vín.
Barinn er með úrval af sérvöldum ginum og eru hanastélin með meigin áherslu á áframhaldandi ginvæðingu Reykjavíkur.
Eldhúsið er opið þriðjudag til sunnudags frá 07:00-21:00. Barinn er opinn frá 15:00 til 23:00. Mánudaga er opið frá 07:00 til 14:00 en lokað á kvöldin.
Veitingageira snappið á Raw Wine Fair í London
Tinna Óðinsdóttir og Loftur Hilmar Loftsson heimsækja Raw Wine Fair í London sem er hátíð sérhæfð í lífrænt ræktuðum og lífefldum léttvínum.
Á hátíðina mæta um 200 framleiðendur frá öllum heiminum og bjóða upp á kynningar, fræðslu og smakk af yfir 500 vínum.
Tinna og Loftur ætla að taka fylgjendur veitingageira snappsins með í þetta ferðalag, en hátíðin er sunnudaginn 11. mars og mánudaginn 12. mars næstkomandi.
Fylgist með á snapchat aðganginum: veitingageirinn
Samsett mynd: Sandhotel.is / Veitingageirinn
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?




