Freisting
Safnahelgi á Suðurlandi 7. 9. Nóvember 2008

Rauða Húsið Eyrabakka – Sjávarfang
Vel mettur og sæll ( ekki komdu sæll ) lagði kallinn af stað frá Klaustri og kúrsin tekin í vestur eins og áður er sagt.
Hafði á leiðinni austur séð að það var komið nýtt hús við Landvegamót og ákvað þá að stoppa þar í bakaleiðinni, þó mér blóðlangaði að stoppa á Skógum og fá mér Kjötsúpu en ég var svo pakksaddur að það fauk út af borðinu med de samme, enda kom á daginn að þegar ég renndi framhjá var lystin í næsta bíl á eftir,( ég meina matarlistin ), framhjá Hvolsvelli og að skálanum áðurnefnda, en mikið sá ég eftir því að hafa ekki stoppað hjá vini mínum honum Guðmundi í Hlíðarenda sem er að reyna að rífa staðinn upp eftir misjafnt gengi ævintýramanna , því viðurgjörningurinn hefði verið betri hjá honum, en það litla sem í boði var í Landvegamóts skálanum, mín mistök.


Eftir stutt stopp skundaði kall út í bíl með kút af diet kók og keyrði í burt með þá hugsun að hér myndi maður aldrei stoppa aftur. Áfram framhjá Hellu, svo Selfoss og niður á Eyrabakka að veitingastað sem heitir Rauða húsið, en þar skyldi tekið hús á Pétri Andréssyni eiganda og yfirmatreiðslumeistari staðarins en hans aðkoma fólst í sjávarfangi.

Matseðillinn var eftirfarandi:
Marineraður Ölfusárlax með laxahrognum og agúrkustrimlum
*****************
Bakaður Þorskur úr Þorlákshöfn á hvítlauksbökuðum gulrótum og smjörsósu
*****************
Grillaður Hornafjarðarhumar með fersku salati og kryddssmjöri

Allt voru þetta firnagóðir réttir og er það virkilega ánægjulegt hvað eldamennskan á landsbyggðinni er í háum standard ég segi bara til hamingju Sunnlendingar , sæll þarf eitthvað að ræða þetta ,hélt ekki .

Þá er komið að lokum í kvöld verið þið sæl ( muniðið þið hvaða þáttur endaði svona í mörg ár ) svar í næsta pistli.

Safnahelgi á Suðurlandi – Fimmti hluti
Safnahelgi á Suðurlandi – Fjórði hluti
Safnahelgi á Suðurlandi – Þriðji hluti
Safnahelgi á Suðurlandi – Annar hluti
Safnahelgi á Suðurlandi – Fyrsti hluti
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt5 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn2 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn2 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg



