Keppni
Sævar Helgi kom sá og sigraði í Viskí-Diskó keppninni
Í ár var keppnisfyrirkomulagið á Vinnustaða keppninni breytt þannig að á hverju ári verður nýtt þema fyrir keppnina og mun keppnin heita eftir því þema sem á við hverju sinni.
Fyrsta keppnin á kokteilhátíðinni Reykjavík Cocktail Weekend sem haldin var með þessum hætti heitir Whiskey-Disko. Eins og kunugt er þá njóta Whiskey kokteilar mikilla vinsælda í heiminum í dag og er eftirspurnin eftir þeim farin að aukast. Til að gera keppnina enn meiri spennandi þá ákvað dómnefndin að hafa Diskó þema og voru aukastig gefin fyrir hversu vel keppendur ná að nýta sér Diskó þemað í sínum drykk.
Það var Sævar Helgi Örnólfsson hjá Sushi Social sem sigraði Whiskey-Disko með drykkinn Tony Montanas disco.
Úrslit voru kynnt í Gamla bíó rétt í þessu við hátíðlega viðhöfn þar sem lokaathöfnin fór fram á Reykjavík Cocktail Weekend hátíðinni:
- sæti – Sævar Helgi Örnólfsson (Sushi Social) / Drykkurinn: Tony Montanas disco
- sæti – Hanna Katrín Ingólfsdóttir (Grillmarkaðurinn) / Drykkurinn: Green is good
- sæti – Helgi Aron Ágústsson (Pablo Discobar) / Drykkurinn: Smoky Tony
Dómnefnd:
- Andri Davíð Pétursson – Varaforseti Barþjónaklúbbs Íslands (BCI)
- Nonni Quest – Hárgreiðslumesistari og viskí sérfræðingur
- Sigurjón Ragnarsson – Stjörnuljósmyndari
- Alba E. Hough – Vínsérfræðingur
- Margét Gunnarsdóttir – Fyrrum Heimsmeistari í faglegum vinnubrögðum
Það er Barþjónaklúbbur Íslands sem ber veg og vanda af skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar.
Mynd: úr safni.
Myndir frá hátíðinni væntanlegar.
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




