Freisting
Ósakoli – ný nytjategund úr hafinu

Stjórnarmenn Biopol og framkvæmdastjóri ásamt starfsmönnum Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar
Veiðimálastofnun og BioPol Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd hafa ákveðið að leggja saman krafta sína hvað varðar rannsóknir tengdar hafinu, auðlindum sjávar og ósasvæðum fallvatna.
Samvinna verður um rannsóknir á sviði sjávarlíffræði, fiskavistfræði, auðlindanýtingar, sjávarlíftækni og tengdra sviða.
Samstarfssamningur því til staðfestingar var undirritaður mánudaginn 19. nóvember.
Meginmarkmið samningsins er að efla samstarf, þekkingu og tækniþróun aðila á fyrrgreindum rannsóknasviðum, hvort sem um ræðir lífverur ferskvatns eða sjávar. Sérstaklega er í því ljósi horft til rannsókna á strand- og ósasvæðum við Húnaflóa og í Skagafirði.
Að undanförnu hafa BioPol ehf og Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar á Sauðárkróki ásamt Háskólanum á Akureyri verið að skilgreina og fjármagna sameiginlega ný rannsóknaverkefni. Rannsóknir á hrognkelsum og mikilvægi ósasvæða fyrir viðkomu fiskseiða í Húnaflóa og Skagafirði fara af stað nú í vor með sameiginlegri aðkomu allra þessara aðila.
BioPol ehf. var stofnað í júlí á þessu ári og er markmiðið að stunda rannsóknir á lífríki sjávar, m.a. í Húnaflóa, rannsóknum í líftækni, nýsköpun og markaðssetningu á afurðum líftækni úr sjávarlífverum og fræðsla á þessum sviðum. Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar hefur haft aðsetur í Skagafirði frá 1984 og sinnt rannsóknum á lífríki í ám og vötnum ásamt ráðgjöf um nýtingu fiskistofna. Þá hefur deildin unnið að rannsóknum á lífríki ósasvæða vatnsfalla um land allt undanfarin ár þar sem mætast bæði ferskvatns og sjávartegundir. Eitt stærsta verkefnið á því sviði eru rannsóknir á landnámi og nýtingarmöguleikum nýrrar kolategundar við Ísland, ósakola/flundru, sem lifir bæði í sjó og fersku vatni.
Samstarfssamningurinn var undirritaður á skrifstofu BioPol ehf á Skagaströnd. Viðstaddir voru starfsfólk Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar og stjórn BioPol ehf.
Samninginn undirrituðu fyrir hönd Veiðmálastofnunar, Sigurður Guðjónsson forstjóri og Bjarni Jónsson deildarstjóri Norðurlandsdeildar en fyrir BioPol ehf. Adolf H. Berndsen, stjórnarformaður, og Halldór G. Ólafsson framkvæmdastjóri.
Greint frá á vefsíðu Veiðimálastofnun
Mynd: veidimal.is | [email protected]
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanVölundur Snær opnar nýjan veitingastað í sveitinni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanPaul Cunningham opnar sig um heilsuna og lífið eftir aflimun
-
Markaðurinn4 dagar síðanInnnes hefur samstarf við þýskan mjólkurrisa
-
Keppni2 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir er Vínþjónn ársins 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanSvona gerir þú vinsælu sítrónukökuna frá Starbucks heima
-
Frétt3 dagar síðanAlþingi samþykkir róttækar breytingar á heilbrigðiseftirliti landsins
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt KEA skyr sækir innblástur í einn þekktasta eftirrétt heims
-
Markaðurinn1 dagur síðanSérsniðið íslenskunám fyrir Wolt-sendla: Samstarf sem eflir inngildingu


