Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
Gamla Reykjavík hefur nú opnað formlega við Austurstræti 14 í miðborg Reykjavíkur, í sama húsnæði og Duck & Rose var áður starfræktur. Duck & Rose lokaði dyrum sínum að kvöldi konudagsins, 22. febrúar síðastliðinn, og í kjölfarið var tilkynnt að nýr staður, Gamla Reykjavík, myndi taka við rekstrinum á sama stað. Það eru sömu rekstraraðilar sem standa að breytingunni, en með nýrri áherslu og endurmótaðri ímynd.
Sjá einnig: Duck & Rose lokar á konudag
Gamla Reykjavík er opin alla daga frá klukkan 12:00 til 01:00 og er eldhúsið opið til klukkan 22:00. Þá er boðið upp á happy hour daglega frá klukkan 15:00 til 19:00. Engar borðpantanir eru teknar í almennan sal, en gestir eru ávallt velkomnir að ganga inn. Sérstakt karaokeherbergi, hið svokallaða Græna herbergi, er hins vegar bókunarskylt og rúmar allt að 24 manns.
Matseðillinn byggir á íslenskri hefð í bland við sígilda krár- og bistrórétti. Á meðal smárétta eru franskar, bæði venjulegar og hlaðnar, kjúklingavængir með ýmsum sósum, hlaðið nachos, flatkökur með hangikjöti og hákarl borinn fram með brennivíni. Þá eru 10 tommu pítsur á boðstólum, þar á meðal margherita, pepperoni og BBQ kjúklingur.
Í aðalréttum má finna klassíska íslenska kjötsúpu, plokkfisk og fisk og franskar, auk fjölbreyttra borgara með mismunandi ostum og sósum. Þá er einnig boðið upp á nautalund með sósu og frönskum, hægeldaðan lambaskanka og nautapottrétt eldaðan í Guinness. Með þessu er leitast við að höfða jafnt til heimamanna sem ferðamanna sem vilja kynnast íslenskum réttum í notalegu umhverfi.
Eftirréttirnir sækja sömuleiðis í hefðina, þar sem íslenskar pönnukökur og grjónagrautur með lifrarpylsu eru meðal þess sem boðið er upp á.
Fyrir hópa og viðburði er í boði sérstök veisluþjónusta með nokkrum mismunandi veislupökkum. Þar eru bruschettur, smáréttir á borð við taco með rifinni önd, nautaspjót, kjúklingaspjót og djúpsteiktar rækjur, auk sælkerabita fyrir þá sem vilja ljúka máltíðinni á sætum nótum.

Kristín Júlla Kristjánsdóttir, hönnuður Gamla Reykjavíkur, í sal veitingastaðarins við Austurstræti 14.
Það var Kristín Júlla Kristjánsdóttir sem sá um hönnun staðarins og ber rýmið skýr merki um hlýlegt og sögulegt yfirbragð sem vísar til gamla Reykjavíkur. Víglundur Guðmundsson hannaði merki staðarins sem fellur vel að heildarímyndinni. Innréttingar, litaval og veggskraut skapa notalegt andrúmsloft þar sem gestir geta sest niður í setustofuumhverfi og notið matar og drykkjar í hjarta borgarinnar.
Með opnun Gamla Reykjavíkur hefst nýr kafli í sögu húsnæðisins við Austurstræti 14. Áherslan er skýr, íslensk hefð, aðgengilegur matseðill og líflegt andrúmsloft í miðborginni, þar sem bæði matur, drykkur og söngur fá að njóta sín.
Heimasíða staðarins er gamlareykjavik.is
Myndir: Facebook / Gamla Reykjavík
-
Markaðurinn6 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt5 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn7 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTímamót hjá Mat og drykk eftir áratug á Grandagarði







