Frétt
Ný Ferðagjöf tekur í gildi í sumar
Eins og fram hefur komið þá er fyrirhugað að gefa út nýja Ferðagjöf stjórnvalda í sumar og verður fjárhæðin sú sama og árið 2020, þ.e. 5.000 kr. fyrir einstaklinga fædda 2003 eða fyrr. Enn verður hægt að nota ónýttar Ferðagjafir, útgefnar árið 2020, til 31. maí 2021, en eftir það falla þær niður við endurnýjun Ferðagjafar 2021.
Ferðagjöfin er hluti af nýjum aðgerðapakka stjórnvalda til að byggja enn frekar undir íslenska ferðaþjónustu, en fyrirtæki í ferðaþjónustu eru meirihluti þeirra sem nýtt hafa efnahagsúrræði stjórnvalda undanfarið ár, enda hefur greinin orðið fyrir búsifjum umfram aðrar greinar.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun leggja fram frumvarp um endurnýjun Ferðagjafar með gildistíma frá 1. júní 2021 til og með 31. ágúst 2021.
„Markmið ferðagjafar er að hvetja fólk til að ferðast vítt og breitt um landið, ásamt því að hvetja fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar til þátttöku í verkefninu, með því að bjóða upp á fjölbreytt tilboð og tækifæri, líkt og síðasta sumar en átakið mæltist vel fyrir og hafði jákvæð áhrif á fólk og fyrirtæki,“
segir Þórdís Kolbrún í tilkynningu.
812 fyrirtæki og tæplega 200 þúsund einstaklingar
Ferðagjöf stjórnvalda er tímabundið úrræði, sem sett var á fót síðastliðið sumar, í þeim tilgangi að hvetja landsmenn til að ferðast innanlands og nýta Ferðagjöfina hjá ferðaþjónustuaðilum. Gjöfin er hluti aðgerða ríkisstjórnarinnar til að efla efnahagskerfið og draga úr þeim neikvæðum áhrifum sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft í för með sér á atvinnulífið, þá sér í lagi íslenska ferðaþjónustu.
Íslendingar létu ekki sitt eftir liggja á síðasta ári en frá gildistöku laganna í júní 2020 þar til í apríl 2021 höfðu tæplega 200 þúsund einstaklingar sótt Ferðagjöfina af þeim 280 þúsund sem fengu hana útgefna. Þá hafa 812 fyrirtæki verið skráð til þátttöku. Með endurnýjun Ferðagjafar 2021 eru einstaklingar hvattir til að ferðast innanlands í sumar, rétt eins og síðastliðið sumar, eftir því sem aðstæður leyfa.
-
Frétt7 dagar síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNý eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Frétt2 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Bocuse d´Or22 klukkustundir síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Markaðurinn4 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt3 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Markaðurinn4 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi






