Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Ný eldpiparhátíð ryður sér til rúms í Reykjavík: „Æsispennandi átkeppni með veglegum verðlaunum“

Birting:

þann

Reykjavík Chilli Festival

Ný matarhátíð sem helguð er eldpipar og bragðsterkum mat verður haldin í fyrsta sinn í Reykjavík sunnudaginn 3. maí næstkomandi. Hátíðin ber heitið Reykjavík Chilli Festival og fer fram í Gamla bíó milli klukkan 12:00 og 18:00. Aðgangseyrir er 2.000 krónur.

Að baki hátíðarinnar standa Þórey Hafliðadóttir, eigandi Helvítis ehf., og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir, eigandi Bongo Design slf. Markmið þeirra er að vekja athygli á fjölbreytileika þeirra sem vinna með bragðsterk hráefni á Íslandi og skapa nýjan vettvang fyrir áhugafólk um eldpipar.

Reykjavík Chilli Festival

Þórey Hafliðadóttir og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir stjórnendur hátíðarinnar.
Ljósmynd: Veronika Guls

Íslenskir smáframleiðendur í aðalhlutverki

Á hátíðinni verður meðal annars matarmarkaður þar sem íslenskir smáframleiðendur kynna vörur sínar, fræðsla um eldpipar og sjóðandi heit átkeppni þar sem hugrakkir þátttakendur reyna með sér. Þá verður einnig valin „Hot sauce“ ársins.

„Það er markmið hátíðarinnar að draga athygli að fjölbreytileika þeirra sem vinna með bragðsterk hráefni á Íslandi,“

segja skipuleggjendurnir Þórey Hafliðadóttir og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir í samtali við veitingageirinn.is. Þær benda á að Samtök smáframleiðenda matvæla hafi aðstoðað við að tengja hátíðina við framleiðendur víðs vegar að.

Á matarmarkaðnum verða meðal annars sterkar sósur frá LeFever og Ölverk, Garðyrkjustöðin Heiðmörk verður með ferskan ylræktaðan eldpipar beint frá Laugarási, eldpiparsultur frá Helvítis og líklega sterkar pylsur frá Tariello. Þá verður einnig að finna kimchi frá Sýru og framandi krydd frá Mabrúka. Fyrir þá sem þurfa að kæla bragðlaukana verður Skúbb á svæðinu með ís.

„Eins og flestir eldpiparhausar vita þá er mjólkurprótein það eina sem slökkvir á virkni eldpipars,“

segja þær og bæta við að ekki sé útilokað að ísinn sjálfur verði jafnvel með sterku ívafi.

Ekki verða aðeins matvörur til sýnis því gestir geta einnig kynnt sér ýmiss konar handverk, þar á meðal skart eftir skartgripahönnuðinn Hafdísi Einarsdóttur og heklaða eldpiparbelgi sem Kolbrún Karlsdóttir hannar.

Reykjavík Chilli Festival

Litrík og eldheit grafík fyrir Reykjavík Chilli Festival, hönnuð af Þóri Karli Bragasyni Celin.

Sjóðandi heit átkeppni á dagskrá

Einn af hápunktum dagsins verður sérstök átkeppni sem lofar mikilli spennu.

„Átkeppnin verður æsispennandi dagskrárliður þar sem góður hópur hugrakkra einstaklinga mun keppast um vegleg verðlaun og auðvitað montréttinn,“

segja skipuleggjendurnir. Þær taka þó fram að þátttakendur þurfi að hafa náð 18 ára aldri, vera fullfrískir og taka þátt á eigin ábyrgð.

Áhugi á eldpipar hefur aukist jafnt og þétt á Íslandi á undanförnum árum og er þróunin í takt við það sem sést víða annars staðar í heiminum. Skipuleggjendur segja að Íslendingar hafi jafnvel komið þeim á óvart þegar kemur að styrkleika.

„Þegar sterkasta sulta Íslands fór á markað var gert ráð fyrir að hún yrði helst keypt sem áskorun eða grikkur.

Raunin er hins vegar sú að stór hópur fær sér hana á ristað brauð á morgnana og það segir sitt um hversu langt Íslendingar eru tilbúnir að ganga þegar kemur að styrkleika,“

segja þær.

Reykjavík Chilli Festival

Kristín Jóna Þorsteinsdóttir og Þórey Hafliðadóttir stjórnendur hátíðarinnar ásamt lukkudýri hátíðarinnar Ívari Erni Hansen sem er betur þekktur sem Helvítis Kokkurinn.
Ljósmynd: Veronika Guls

Helvítis Kokkurinn kveikir í stemningunni

Lukkudýr hátíðarinnar verður Ívar Örn Hansen matreiðslumeistari, betur þekktur sem Helvítis Kokkurinn. Aðspurðar hvort hann verði rödd skynseminnar þegar hitinn fer yfir strikið svara skipuleggjendurnir hlæjandi.

„Helvítis Kokkurinn er sjaldnast rödd skynseminnar þegar kemur að hófsemi í eldpiparáti og líkurnar eru miklar á því að hann verði sá sem ýtir öllum yfir strikið.“

Hátíðin er haldin í samstarfi við Ölgerðina og vonast skipuleggjendur til að viðburðurinn marki upphafið að nýrri hefð í íslensku matar- og hátíðarlífi. Þær segja að áhugi sé þegar farinn að vakna víðar.

„Það er okkar von að Reykjavík Chilli Festival leggist vel í landann og verði virkur þáttur í að auka eldpiparáhuga á Íslandi. Við sjáum klárlega fyrir okkur að hátíðin geti orðið árlegur viðburður og jafnvel stærri með hverju árinu.“

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið