Vertu memm

Frétt

MOMA hafragrautur tekinn úr sölu eftir aðskotahlut fannst

Birting:

þann

MOMA hafragrautur tekinn úr sölu eftir aðskotahlut fannst

Matvælastofnun varar við neyslu á nokkrum framleiðslulotum af MOMO hafragraut sem K. Karlsson ehf flytur inn vegna aðskotahluta. Fyrirtækið hefur ásamt Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnanes-HEV  innkallað vöruna.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Moma
  • Vöruheiti: Moma Golden Syrup Porridge Pot, Moma Cranberry og Raisins Porridge Pot og Moma Almond Butter & Salted Caramel Porridge Pot
  • Framleiðandi: Moma Foods
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Innflytjandi: Karl K Karlsson ehf
  • Nettó þyngd: 55-70g
  • Lotunúmer: sjá að neðan
  • Strikanúmer: 5060146372046, 5060146370431, 5060146 370714
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Dreifing vörunnar var í eftirfarandi verslanir: Hagkaup, Hlíðarkaup, Samkaup, Nettó, Kjörbúðin, Fjarðarkaup

Neytendur sem keypt hafa vörurnar skulu ekki neyta þeirra heldur farga eða fara með til verslunarinnar og fá endurgreitt.

Mynd: mast.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið