Frétt
Matvælastofnun varar við neyslu á kúmen kryddi
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Prymat cumin sem var til sölu hjá Mini Market vegna náttúrulegrar eiturefna sem greindust yfir leyfilegum mörkum. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað vöruna.
Tilkynningin um innköllunina kom í gegnum hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Prymat
- Vöruheiti: Ground cumin / Kmin rzymski mielony
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.03.2026
- Strikamerki: 5901135032001
- Nettómagn: 15 g
- Framleiðandi: Prymat sp. z.o.o.
- Framleiðsluland: Pólland
- Innflutningsfyrirtækis: Mini Market., Faxafeni 14, 108 Reykjavík
- Dreifing: Mini Market ehf, Drafnarfell 14, 111 Reykjavík
Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila til verslunarinnar.
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Markaðurinn3 dagar síðanVel heppnuð Matur & Vín sýning hjá Innnes – Myndir og myndband
-
Keppni5 dagar síðanElvar keppti fyrir Íslands hönd í Singapore
-
Frétt4 dagar síðanSkordýraleifar fundust í hrísgrjónum
-
Frétt4 dagar síðanÓlöglegt varnarefni fannst í Pinkids eplum
-
Markaðurinn5 dagar síðanLærðu af einum fremsta matarljósmyndara Norðurlanda
-
Markaðurinn1 dagur síðanFastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa




